Kirkjuritið - 01.06.1942, Qupperneq 42
216
Prestastefnan.
Júní-Júli.
Og' svo vottum vér minningu hans virðingu vora með þvi að
rísa úr sætum.
Af þjónandi prestuin lé/.t einn á árinu. Var það séru Páll
Hjaltulín Jónsson prófastur i Svalbarðsprestakalli í Norður-
Þi n gey j a rp r ó f ast dæm i.
Hann var fæddur að Krossanesi i Snæfellsnessýslu 31. okt.
1871. Voru foreldrar hans Jón bóndi Thorsteinsen og Guðný
Jóhannsdóttir að Grímsstöðum við Reykjavík. Árið 1881 gekk
hann i latínuskólann í Reykjavik og lauk þar námi vorið 1893.
Embættisprófi við Prestaskólann lauk hann 31. ágúst 1895.
Framan af starfsárum sínum stundaði hann barnakenslu, eða
til ársinS 1897, en þá fékk hann (hinn 4. maí) veitingu fyrir
Fjallaþingum i Norður-Þingeyjarprófastsdæmi. Því embætti
þjónaði liann í tvö ár, en var þá árið 1899 veitt Svalbarðs-
prestakall í Þistilfirði, og þjónaði hann þvi embætti eftir það,
meðan hann lifði.
Pról'astur í Norður-Þingeyjarprófastsdæmi var hann skipaður
árið 1908 og gegndi prófastsstörfunum til síðustu áramóta en
þá óskaði liann að verða leystur frá þvi starfi, með því að
heilsu hans fór hnignandi. Með séra Páli prófasti á kirkjan á
bak að sjá ágætum starfsmanni og dyggum þjóni. Enda var hann
hinn ástsælasti meðal sóknarbarna sinna.
Hann var glæsilegur maður að ytri ásýndum og drengur góð-
ur, fróður og gamansamur í viðræðum, söngmaður og glaður
í viðmóti.
Fyrir þetta alt mun minning hans lifa, og er mer óliætt að
fullyrða, að honum var fylgt til g'rafar með lmkklæti og söknuði
• af sóknarbörnum hans, en lík hans var flutt heim eftir andlát
Iians og greftrað þar. Á hann þakkir kirkjunnar fyrir langt og
gott starf. — Séra Páll var kvæntur Ingveldi Einarsdóttur verzt-
unarstjóra í Reykjavík. Giftust þau 8. mai 1897. Var heimili þeirra
jafnan hið gestrisnasta, og fór orð af alúð og höfðingskap þeirra
hjónanna beggja. Þau eiga 4 börn á lífi, öll uppkomin.
Vér vottum minningu hans virðingu með j)ví að rísa úr sætum.
Af prestum, sem látið höfðu af embættum, létust tveir á árinu:
1. Séra Sveinn Giiðmundsson frá Árnesi dó liér í Reykjavík
2. marz þ. á. Hann var fæddur að Hömluholtum í Eyjarhreppi
í Hnappadalssýslu 13. jan. 1869. Voru foreldrar hans Guðmund-
ur Jónsson bóndi og Ingveldur Jónasdóttir. Hann gekk í lærða-
skólann i Reýkjavík árið 1885. Útskrifaðist þaðan árið 1891,
og 1893 tók hann embættispróf i guðfræði við Prestaskólann i
Reykjavík. Tvo næstu vetur stundaði hann barnakenslu í Ólafs-
vík í Snæfellsnessýstu. Hinn 8. des. 1894 fékk hann veitingu