Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1942, Page 54

Kirkjuritið - 01.06.1942, Page 54
228 Prestastefnan. Júní-Júli. þess óska, að því er snertir lexíuval, fyrir skólana og útvegun mynda og annara tækja. 2. Nefnd, er sé þeim, er óska, til aðstoðar við útvegun bóka og annars hentugs efnis til notkunar í sambandi við starfið fyrir ungt fólk, um og yfir fermingaraldur. Ennfremur skorar prestastefnan á alla, sem aðstöðu hafa, að beita sér fyrir því, að kristindómsfræðslunni í skólum landsins verði komið i það horf, sem vera ber“. Skipaðir voru í nefndir þessar: Sunnudagaskólanefnd: Sigurbjörn Á. Gíslason cand theol. Séra Sigurbjörn Einarsson, Reykjavík. Séra Garðar Svavarsson, Reykjavík. Leiðbeininganefnd um unglingastarfsemi: Séra Friðrik Hallgrímsson dómprófastur, Reykjavík. Séra Jón Thorarensen, Reykjavík. Séra Árni Sigurðsson, Reykjavík. 4. Sjómannastofur. Málshefjandi var Jakob Jónsson. Ræddi hann einkum um nauðsyn þess að koma á fót slíkum stofnun- um erlendis fyrir liina íslenzku sjómenn, og þá einkum í Eng- landi. Lagði hann fram tillögur í málinu, er vísað var til nefnd- ar, og var málið tekið til nýrrar umræðu daginn eftir. Svohljóð- andi tillögur frá nefndinni voru samþyktar: „Prestastefna íslands ályktar: 1. Að full nauðsyn sé á stofnun íslenzkrar sjómannastofti í enskum liafnarbæ, og lýsir gleði sinni yfir þeim undir- búningi, sem þegar er hafinn að framkvæmd málsins. 2. Að einnig sé mikil nauðsyn á sjómannastofu og sjó- mannaheimili í Reykjavik og í helztu verstöðvum lands- ins. 3. Að kirkjulegt starf sé sjálfsagður þáttur í starfsemi sjó- mannastofa bæði hér og erlendis. 4. Að það sé.skylda íslendinga að fara að dæmi annara þjóða og styrkja eftir megni þjóðernisstarfsemi landa sinna- erlendis. Með skírskotun til þessarar ályktunar beinir prestastefn- an þeirri áskorun til kirkjustjórnarinnar, að hún athugi möguleika á því, að ráðinn verði prestur til þjónustu við liina væntanlegu sjómannastofu i Englandi, og hafi liann jafnframt á hendi guðsþjónustustörf meðal landa í London, eftir því, sem við verður komið. Prestur þessi sé launaður af íslenzka ríkinu. Ennfremur athugi kirkjustjórnin mögu- leika á stofnun sjómannastofa í Reykjavík, og hvernig

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.