Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.06.1942, Side 66

Kirkjuritið - 01.06.1942, Side 66
240 Áhrif móÖurbænar Júní-Júli. fór fram á það, að þeir, sem liefðu ætlað að gefa kirkjunni, Jegðu það fé fram kristniboðinu til eflingar og söfnuðust um 1200 krónur. Kl. 5 e. h. var altarisganga, og flutti séra Ghnnar Jóhannesson skriftaræðu, og tóku þátt í altarisgöngunni um 250 manns. Kl. 8,30 var kveðjustund í kirkjunni. Þar var séra Þor- steini Briem og' Haraldi Böðvarssyni þakkað sérstaklega fyrir þá velvild, sem þeir höfðu sýnt við undirbúning mótsins, óg úr hópi þátttakenda þakkaði Helgi Trygvason kennari þeim, sem stjórnuðu mótinu og stuðluðu að því, að það var lialdið og gæti orðið sem ánægjulegast. Um kl. 11 á mánudagskvöld var haldið til Reykjavikur með Laxfossi og var sungið við raust alla leiðina. Það, sem mér þótti sérstaklega athyglisvert við þetta mót, var það, hve margt ungt fólk sótti það. Þarna voru sannarlega glaðir æskumenn saman komnir, enda hafði Akranesingur einn sér- staklega orð á því, livað sér þætti jæssir trúuðu menn kátir. Veðrið var einstaklega gott alla dagana, sólskin og hiti, enda var flest, sem stuðlaði að því, að gera mótið jafn ánægjulegt og raun bar vitni. Sverrir Kr. Sverrisson. Áhrif móðurbænar. Fyrir meira en 50 árum síðan, fagran sunnudagsmorgun, voru átta ungir menn, allir lögfræðinemar, á gangi meðfram einni af ám þeim, sem renna í Potomakfljótið, ekki langt frá borginni Washington. Þeir voru á leiðinni út í lund einn, á afviknum stað, þar sem þeir ætluðu að njóta hvíldardagsins með því að spila á spil og' drekka vín. Hver þeirra liafði vínflösku í vasa sínum. Allir áttu þeir trúræknar mæður. Á leiðinni skemtu þeir hver öðrum með gáskafullum spaugsyrðum, en þá tók kirkju- klukka í þorpi einu, um hálfa mílu i burtu þaðan, að hringja. Það hljómaði í eyrum þessara léttúðugu ungu manna eins greini- lega og klukkunum hefði verið hringt á bakkanum hinum megin við ána, sem þeir gengu fram hjá. Undir eins nam einn þeirra staðar, liann hét Georg, og sagði við vin sinn, sem gekk við hlið hans, að hann vildi alls ekki fara lengra, heldur snúa við til þorpsins og fara í kirkju. Vinur lians kallaði til félaga þeirra, sem voru spottakorn á undan: „Drengir! Drengir! Komið þið liingað! Georg er að verða trú-

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.