Kirkjuritið - 01.12.1945, Page 24
310
Ásmundur Guðmundsson:
Nóv.-Des.
að ræða en að leita gistingar í borginni. En þangað eru 22
mílur enskar*) frá flugvellinum. Öll gistihús, sem ég fer til,
eru full, svo að ég verð, að leigja mér aftur bíl og halda til flug-
stöðvarinnar. Ætla ég að láta þar fyrirberast á beltk það, sem
cftir er nætur. En einn skrifstofumannanna býðst til áð sjá
mér fyrir svefnstað, og livílist ég þar um stund.
Síðasta áfangann til Winnipeg gengur allt að óskum, og stíg
ég þar út úr flugvélinni um miðaftan, réttum 3 sólarhringum
eftir að ég tók mig upp að heiman. Fjórir landar minir eru
komnir til þess að taka á móti mér: Séra Valdimar J. Eylands
varaforseti Evang.-lúterska kirkjufélagsins, séra Egill Fáfnir
ritari jjess. dr. Richard Beck forseti Þjóðræknisfélagsins og
Grettir Jóhannsson ræðismaður. Er nú aflétt öllum áhyggjum
ferðalagsins við vinarhug þeirra og hjálpsemi. Við ökum sam-
an til heimilis séra Valdimars og borðum þar kvöldverð með
konu lians og börnum og Pétri Sigurgeirssyni, nýkomnum suun-
■ an úr Bandaríkjum. Þá er mál að ganga til tiða í kirkju Fyrsta
lúterska safnaðarins skammt frá, Tjaldbúðarkirkjunni gömlu.
Þar liafði ég prédikað á vígsludegi liennar fyrir tæpum aldar-
þriðjungi. Margt er í kirkju, og hitti ég nú fornvin minn dr.
Harald Sigmar, forseta Kirkjufélagsins. Kór kirkjunnar er
skipaður söngflokki í svörtum skrúða, konur liafa hvítan kraga
um hálsinn. Söngurinn er fallegur og þróttmikill, Póll Bardal
þingmaður stjórnar, en Snjólaug Sigurðsson leikur undir. Séra
Valdimar þjónar fyrir altari, en séra Egill stígur i stólinn og
flytur prédikun út af orðunum: Kristur leið einnig fyrir yður
og eftirlét yður fyrirmynd, til þess að þér skylduð feta i fót-
spor hans. Öll er guðsþjónustan hátíðleg, en hátíðlegust þó, er
tíður að lokum hennar og kirkjuþingsfulltrúar og annað kirkju-
fólk safnast að altarinu og neytir kvöldmáltíðarsakramentisins.
Augu allra horfa til Kristlíkans Thorvaldsens á altarinu, er
breiðir út hendur. Sjá þau ekki einnig veruleikann á bak viö?
Þetta er heilög stund, er hver hringurinn af öðrum krýpur við
altarið.
Að messu lokinni setur forseti kirkjuþingið og flytur skýrslu
sína um starf félagsins ó iiðnu ári. Hann býður mig velkom-
inn, og ég ávarpa þingið nokkrum orðum. Dagur er að kveidi
kominn. Ritari hvetur menn til að sitja jhngið vel næstu daga,
og megi engir víkja af því án leyfis forseta. „Nefndir eiga að
*) Þegar mílur verða nefiular hér eftir, er alltaf ótt við ensk-
ar mílur.