Kirkjuritið - 01.12.1945, Síða 53
Kirkjuritið.
Séra Friðrik Hallgrímsson dómpróf.
Hann fær nú lausn frá em-
bætti í þessum mánuði eftir
47 ára prestsþjónustu austan
hafs og vestan. En sístarfandi
mun hann verða áfram að
hugðarmálum sínum engu að
síður. Um prestsstarf hans
munu allir sanngjarnir menn
sammála, að hann hafi unnið
það af mikilli prýði, einkum
hefir hann verið frábær fræð-
ari og leiðtogi barna og ungl-
inga. Það var aðdáunarvert,
er hann stofnaði fyrir fáum
árum pilta og stúlkna. félag
Dómkirkjusafnaðarins, og haf-
ir hann verið lífið og sálin í
þeim félagsskap allt til þessa
dags. Séra Friðrik er mjög
vinsæll maður og því meir
metinn sem menn þekkja hann betur. Þótt hann sé orðinn 73 ára,
er yfir honum einkennilegur æskuþróttur. Lundin er létt, hug-
urinn hreinn og hjartað gott. Kirkjuritið samfagnar honum yfir
miklu og göfugu starfi að baki og óskar honum og ástvinum
hans blessunar Guðs.
Á. G.
Nemendur í guðfræðisdeild Háskólans.
Þessir eru skráðir nemendur i gu'ðfræðisdeild Háskólans:
Bjartmar Kristjánsson. Jóhann Hliðar. Sverrir Sverrisson. Sig-
urður Pétursson. Andrés Ólafsson. Emil Björnsson. Kristinn
Hóseasson. Arngrímur Jónsson. Helgi Tryggvason. Hermann
Gunnarsson. Kristján .Bjarnason. Þorsteinn Valdimarsson. Þór-
arinn Jónas Þór. Sverrir Haraldsson (prests Þórarinssonar).
Ennfremur stundar guðfræðinám í deildinni Emil Guðmunds-
son, frá Lundabyggð í Manitoba, Borgfirðingur að ætt, en bor-
inn og barnfæddur vestra.
Frásagnir um fundi Prestafélagsins og binn almenna kirkju-
l'nnd verða birtar í næsta befti, sem kemur út skömmu eftir ára-
mótin.