Kirkjuritið - 01.07.1947, Side 3
Kirkjuritið.
Aldarafmæli Prestaskólans
Aldarafmælis Prestaskólans er minnzt með hátiðahöld-
um 2. okt. bæði í Háskólanum og Dómkirkjunni, og
verður nánar frá þeim skýrt í næsta hefti Kirkjuritsins.
Prestaskólinn var stofnaður með konungsbréfi 21.
maí 1847 og skyldi taka til starfa 1. október um liaust-
ið. Skólasetning fór þó eigi fram fyrr en 2. október. Var
fyrsta lieimili skólans í Latínuskólahúsinu, en þar
varð brátt of þröngt um liann, og fluttist hann liaustið
1851 í hús Sigurðar kaupmanns Sivertsens við Hafnar-
stræti, og starfaði þar þangað til árið 1873, að hann
var samkvæmt tillögum stiftamtmanns fluttur í liúsa-
kynni þau, sem Landsyfirrétturinn liafði til þess tíma
haft við Austurstræti, en var þá nýfluttur úr. Þar er
nú verzlunarbúð Haralds Árnasonar.
Þarna starfaði skólinn 38 ár. Þegar Háskólinn var
stofnaður 1911, fékk hann búsnæði í Alþingishúsinu,
°g þar fór guðfræðikennslan fram þangað til árið 1940,
a‘ð Háslcólinn flutti í liið veglega hús, sem reist liafði
verið fyrir starf hans.
Forstöðumenn Piæstaskólans voru þessir: Dr. Pétur
Pétursson 1847—1866, Sigurður Melsteð 1866—1885,
Helgi Hálfdánarson 1885—1894, Þórhallur Bjarnarson
1894—1908 og Jón Helgason 1908—1911. Aðrir fastir
kennarar: Hannes Árnason, Eiríkur Briem og Haraldur
Níelsson. Þegar Háskólinn tók til starfa, voru þeir Jón
Helgason og Haraldur Níelsson skipaðir í prófessors-
embætti í guðfræðideild, en Eiríkur Briem lét af
kennslustarfi. Var þá Sigurður P. Sivertsen, prestur i
Hofi j Vopnafirði, skipaður dócent. Aðrir fastir kenn-
arar, sem starfað hafa við guðfræðideild, eru þessir:
Kirkjuritið. ' 13