Kirkjuritið - 01.07.1947, Page 6
186
Aldarafmæli Prestaskólans.
Júlí-Okr.
Magnús Jónsson, Ásmundur Guðmundsson, Sigurður
Einarsson, Björn Magnússon og Sigurbjörn Einarsson-
Er margs að minnast af starfi Prestaskólans og guð-
fræðideildar Háskólans á liðnum hundrað árum, og
gefur Prestafélag Islands út í tilefni af afmælinu mikið
minningarrit í tveimur bindum, sem nefnist: íslenzkir
guðfræðingar 1847—1947. Saga Prestaskólans og guð-
fræðideildar Háskólans og kandidatatal- Hefir séra
Benjamín Kristjánsson ritað yfirlit yfir sögu Presla-
skólans og guðfræðideildar en Björn Magnússon, dó-
cent, tekið saman kandidatatalið.
1 ritinu eru myndir af öllum íslenzkum guðfræð-
ingum l'rá þessu tímabili, sem náðst befir til, er og
greint frá lielztu æviatriðum þeirra.
AHALFUNDUR PRESTAFÉLAGS SUÐURLANDS.
Aðalfundur Prestafélags Suðurlands var haldinn að Þing-
völlum dagana 31. ágúst og' 1. september s. 1.
Fundurinn hófst síðara hluta sunnudags 31. ágúst með
guðsþjónustu í Þingvallakirkju. Séra Garðar Svavarsson þjón-
aði fyrir altari, en séra Sveinn Víkingur prédikaði.
Síðar um kvöldið flutti séra Valdemar J. Eylands erindi
um kirkjulíf Vestur-íslendinga.
Aðalmál prestafundarins var: Fermingin og fermingarundir-
búningur, og höfðu þar framsögu séra Arngrimur Jónsson í
Odda og séra Jakob Jónsson. Séra Sigurður Pálsson sagði
fréttir af allsherjarþinginu í Lundi. Ennfremur flutti séra
Jóhann Hanncsson þýddan kafla úr fyrirlestri eftir prófessor
Karl Barth.
Stjórn Prestafélagsins var öll endurkosin, en hana skipa:
séra Hálfdán Helgason prófastur ó Mosfelli, formaður; séra
Sigurður Pálsson í Hraungerði, ritari, og séra Garðar Svavars-
son í Reykjavík, gjaldkeri.
Um tuttugu prestar sóttu fundinn. Lauk honum með altaris-
göngu í Þingvallakirkju.