Kirkjuritið - 01.07.1947, Side 24
204
Prestastefnan 1947.
Júlí-Okt.
og ekki lengur i samræmi við verðlagið í iandinu. i annan
stað voru svo ákvæði hinna eldri laga um hýsingu prestsetra
orðin úrelt og áttu ekki við hina hreyttu tíma.
Þetta leiddi til þess að í samráði við þáverandi kirkjumála-
ráðherra voru lögin um hýsingu prestssetra endurskoðuð og
nýtt frumvarp um það efni iagt fyrir Alþingi, er síðan varð
að lögum, með litlum breytingum. í 'þeim lögum er reynt að
þræða meðalveg þannig, að liækkuð eru afgjöld eldri prests-
seturshúsa í samræmi við aukna dýrtíð og sett ákvæði um
þau liús, sem byggð hafa verið og byggð verða á verðbólgu-
tímunum án þess að þyngja prestunum í greiðslum úr hófi
fram. Jafnframt eru fyrningarsjóðir prestsseturshúsanna efld-
ir með árlegu framlagi úr ríkissjóði, svo að þeir eettu að
verða færir um að standa undir kostnaði við endurbygging-
ar prestssetranna, er stundir liða fram. Þá eru og í lögum
þessum víðtækari og skýrari ákvæði um byggingu útihúsa á
prestssetrum en var í liinum eldri lögum.
Loks má nefna það ákvæði iaganna, sem vafalaust er til
mikilla bóta, að á næstu fimm árum er ætlazt til að atlmguð
verði gaumg'æfilega öll prestssetur landsins og gerður skipu-
lagsuppdráttur að væntanlegum byggingum þar. En til þessa
hefir víða brostið allmjög á um það, að hentuglega og skipu-
lega hafi verið fyrir komið byggingum á hinum ýmsu prests-
setrum.
Svo er til ætlazt, að lög þessi komi til framkvæmda í þess-
um fardögum en sennilega verður þó ekki hægt að reikna
út gjöld hinna ýmsu presta fyrr en lengra kemur fram á
sumarið.
Til þess að gefa yður ofurlitla Iiugmynd um hin árlegu
gjöld af prestsseturshúsunum samkvæmt hinum nýju lögum,
skal geta þess, að af húsunum reistum fyrir 1930 verður ár-
gjaldið liæst 400 kr. á ári og er þá fyrningarsjóðsgjald með-
talið. Á þetta greiðist verðlagsuppbót, og er því gjald þetta,
eins og nú er, alls rúmlega kr. 1200.00 á ári.
Af kostnaðarverði þeirra prestsseturshúsa, sem yngri eru
en frá 1939 eru 3/5 hlutar kvaðalaus styrkur. En af 2/5 hlut-
um deildum með byggingavísitölu þess árs, þegar húsið var
reist, greiðir presturinn árlega 3Vs% auk fyrningarsjóðs-
gjalds og vísitölu á þá upphæð.
Segjum að prestsseturhús kosti fullbyggt 160 þúsund krón-
ur. Er þá styrkur til byggingarinnar 3/5 kostnaðarverðs eða
kr. 90 þúsund. Afganginum kr. 64 þúsundum er deilt með
byg’gingarvísitölu, og sé hún 400 verður hinn afgjaldsskyhli