Kirkjuritið - 01.07.1947, Page 56

Kirkjuritið - 01.07.1947, Page 56
236 Benjamín Kristjánsson: Júlí-Okt. full þörf, til að sjá fyrir þjónustu kirkjunnar. Var það þá undir rausnarlund og ósérplægni forráðamanna kirkjunnar komið, iivort þeim opnaðist nokkur leið til lærdóms. Það er því mjög líklegt, að biskuparnir liafi einmitt hlynnt að stofnun klaustranna, lagt til þeirra biskups- tíundir og vígt þangað liina færustu menn fyrir ábóta, með það fyrir auguin, að það yrði „mesta styrking kristninnar að‘ efla munkalífin“, þessar stofnanir mundu létta undir í því starfi að kenna prestlingum. f klaustr- unum var griðastaður og næði meira til andlegra iðk- ana en á biskupsstólunum. Þar hefir stöðugt orðið að kenna munkum latínu, og munaði þá ekki svo mjög að bæta við nokkrum prestlingum, ekki sízt, ef klaustrinu bættust þá um leið jarðarpartur eða einbver fríðindi. Má gera ráð fyrir að eitthvað af jarðagóssi því, sem klaustrunum áskotnaðist smám saman, sé þannig til komið, en einhverjum hefir að sjálfsögðu verið kennt í guðsþakkaskyni. Það hefir og reynzt svo, einkum er tímar liðu, að klaustrin urðu öruggustu og stundum ef lil vill einu lærdómssetrin í landinu, enda þótt stopular sagnir fari af þessari kennslu, eins og öðru, sem gerðist innan vé- banda þeirra. Hefir íslenzkt klaustralíf að sjálf- sögðu mjög verið sniðið eftir því, sem tíðkaðist í öðr- um löndum, en þar voru skólar við öll bin frægustu klaustur, einkum Benediktsmunkanna, sem lögðu stund á að uppfræða ungmenni í klerklegum listum. Tvö af merkustu klaustrunum hér á landi, á Þingeyrum og Munkaþverá, voru einmitt af þessari reglu, og störfuðu þar löngum hinir ágætustu lærdómsmenn. Þingeyraklaustur var stofnað 1133 af Jóni Ögmunds- syni, en komst ekki fyllilega á fót, fyrr en á dögum Ketils biskups. Fyrsti ábótinn þar var Vilmundur Þór- ólfsson (1133—’48), góður fræðimaður, lærður í skóla Jóns biskups. Má ætla, að liann hafi tekið sér læriföð-

x

Kirkjuritið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.