Kirkjuritið - 01.07.1947, Side 74
254
Benjamin Kristjánsson:
J úlí-Okt.
prests. Vígði Brandur biskup Sæmundsson Guðmund
góða subdjáknsvígslu 13 ára en messudjákn 14 vetra.
Ilinsvegar tók liann prestsvígslu á réttum aldri. Auðunn
Hólabiskup dispenseraði með ýmsum sonum meiri
háttar presta og liafði vald lil þess frá páfanum1 *).
Laurentíus biskup tekur prestvígslu 22 ára. Þorsteinn
Gunnarsson 18 ára-), og Ólafur biskup Hjaltason (f.
1500) virðist ekki vera nema 17 ára, er liann vsrður
prestur3).
í Stokkhólmsbók, sem er skinnbók frá því um 1360,
er gerð grein fyrir vígslum kaþólskra klerka, og livaða
lærdóms er krafizt fyrir hverja vígslu, og ætla menn að
þetta sé tekið eftir fornu frumriti:
„Hostiarius verður maður, þá er liann er vígður hinni
næstu vígslu á eftir krúnuvígslu. Sú er sýsla liostiarii,
að liann skal varðveita kirkjudyr og bringja til tíða og'
varðveita alll kirkjuskrúð. Af því skal hann við lyklum
taka i vígslu sinni.
Lector skal lesa í óttusöngvum og sálutíðum. Af því
tekur liann við lesturbók í sinni vígslu.
Exorcista skal signa óða menn eða sjúka og þá er
primsigna skal. Af þvi tekur hann særingabók i sinni
vígslu.
Acolitus skal lýsa kirkju og bera .... (elds)Iampa er
guðspjall er lesið og búa vatn og; vín, það er til þjón-
ustu skal liafa. Af því tekur liann við kertisstiku og við
kerti og við vatnskeri í sinni vígslu.
Subdiaconus skal lesa, skrýddur, pistil og messu og
færa með messudjákni kaleik og patínu til altaris,
og þjóna altari og búa til messusöngs. Hann skal
syngja tvennar tíðir einn saman eða með öðrum, nema
H .Bisk. I, 831.
3) Alpb. ísl. 3G3—3ö4.
3) D.I. VIII, 611—612, 615—619, 629—631, sbr. Skírnir 1923
bls. 120, ritgerð Páls Eggerts Ólasonar.