Kirkjuritið - 01.07.1947, Síða 85
KirkjuritiS.
Tómstundarabb.
265
staða manna til þess að skipta um embætti, hagur kirkjunnar
í lieild, þekking og mat á umsækjendum, og allt þetta, sem
flutningsmenn telja fyrir borð borið með núverandi fyrirkomu-
lagi, væri þá engu betur komið eftir en áður. Flokksmaður
ráðherrans, ungur eða gamall, hæfur eða miður liæfur, fengi
embættið.
Fyrir þessu tjóar ekki að loka augunum, ef á annað borð á
að fara að bæta úr misfellum.
Almennar veiting’arreglur.
I stað þess að fara jiannig úr öskunni í eldinn um veitingu
prestakalla, ætti heldur að reyna að finna hentugri aðferðir
við veitingu embætta, aðferð, sem ekki bætti eingöngu úr göll-
um prestskosningalaganna, heldur einnig úr göilum ráðherra-
veitinganna á öðrum embættum.
Þetta á sjálfsagt að koma, þegar lög verða sett um réttindi
og skyldur embættismanna.
En hvenær koma þau?
í tillögum mínum um veitingu prestsembætta var bent á leið-
ir, sem athuga mætti.
Og Læknafélag Islands liefir komið sér upp veitingarreglum.
Eg er ekki í efa um, að setja mætti nokkrar reglur, er liefðu
hemil á alræði ráðherra i þessu mikilsvcrða atriði.
Að minnsta kosti mætti gera að skyldu að auglýsa embætti
með hæfilegum fyrirvara, ákveða, live þungt skyldi veg'a próf,
embœttisaldur, sérstakur undirbúningur og afrek í starfi, hve
mikið skyldi taka tillit til tillagna yfirmanna stétta, að ráðherra
væri skyldugur að færa rök fyrir veitingu o. s. frv.
Ef til vill mætti hugsa sér þá aðferð, að ákveðin nefnd, nokk-
urskonar æðsti dómstóll í þeim efnum, veitti öil embætti.
En hvað sem um þetta er, reglunum um veitingu prestakalia
þarf að breyta, og engin skynsamleg ástæða er til þess, að taka
prestsembættin ein út úr og hafa um þau sérstakar reglur, eins
og nú er komið.
Prækorn. Kristilegt smáritasafn I. Smáraútgáfan.
í fyrra, 1946, voru 100 ár liðin frá dauða séra Jóns Jónsson-
ar, er lengst af bjó í Möðrufelli í Eyjafirði og var kallaður
..hinn iærði“.
18