Kirkjuritið - 01.07.1947, Page 88
268
Fréttir.
Júlí-Okt.
Hér skín þín dýra dagsins brún,
sem dreifist út og lifir,
og íslands fáninn hæst við hún
þér höfði svífur yfir.
Nú þangað heim æ fjöldinn fer;
þar fléttast vinaböndin.
Hinn trúi þjónn það brauð fram ber,
sem blessar Drottins höndin.
Til „Sumarbúða“ horfi’ eg heim
og heyri óminn þaðan,
það talar margt í tónum þeim,
sem tengir hugi saman.
Eg þekki íslands andardrátt
og æsku blíða vorið,
og algæzkunnar alheimsmátt,
þá örðugt reyndist sporið.
Nú lyftist von mót himni há
i helgum vorsins úða,
að vara megi vökvinn sá
i vexti „Sumarbúða“.
Því lífsins valdi lútum vér,
sem letrar rúnir þessar.
Ó — reisið steininn; hann er hér,
sem lijartans grunninn blessar.
Ingibjörg Guðmundsson
FRÉTTIR.
Séra Árni Sigurðsson fríkirkjuprestur
átti 25 ára prestsskaparafmæli 31. ágúst. Hann hefir allan
þennan tíma þjónað fríkirkjusöfnuðinum í Reykjavík og notið
almennrar virðingar og vinsælda.
Séra Eiríkur Brynjólfsson
tók sér og' fjölskyldu sinni flugfari til Vesturheims 17. júní.
Hann þjónar nú Fyrsta lúterska söfnuði í Winnipeg i stað séra
Valdimars Eylands.
Séra Valdimar Eylands
kom liingað til lands með fjölskyldu sína 21. júlí. Hann hefir