Kirkjuritið - 01.07.1947, Qupperneq 89
Kirkjuritið.
Fréttir.
269
á hendi prestþjónustu í Útskálaprestakalli og Staðarprestakalli
í Grindavík. Séra Valdimar er formaður Þjóðrœknisfélags Ves-
ur-íslendinga.
Embættispróf í guðfræði.
Síðastliðið vor, 23. maí, luku þeir embættisprófi í guðfræði
við Háskólann, Andrés Ólafsson með II. eink. betri 109 st. og
Kristján Bjarnason með I. eink. 127% st.
Prestsvíg'sla.
Kristján Bjarnason guðfræðikandidat var vigður prestsvígslu
í Dómkirkjunni í Ileykjavik sunnudaginn 15. júní. Hann er
settur prestur i Svalbarðsprestakalli í Norður-Þingeyjarprófasts-
dæmi.
Kirkjuvígsla.
Biskupinn, dr. Sigurgeir Sigurðsson, vígði nýja kirkju að
Melstað í Miðfirði, sunnudaginn 8. júní.
Hið sameinaða kirkjufélag íslendinga í Vesturheimi
liélt aldarfjórðungsafmæli sitt á kirkjuþingi i Winnipeg i lok
júnímánaðar. Þingið sendi kirlcju íslands alúðlegar kveðjur,
og bárust því einnig árnaðaróskir liéðan að heiman. Forseti
samhandsins er séra Eyjólfur Melan, en ritari séra Philip M.
Pétursson.
Hið evang. lút. kirkjufélag íslendinga í Vesturheimi.
hélt 63. þing sitt í Garðar-prestakalli í Noður-Dakota 13.-17.
júni. Séra Haraldur Sigmar, forseti félagsins, vígði tvo unga
menn prestsvígslu til þjónustu í íslendingabyggðum. Var annar
þeirra Eric, sonur lians. Séra Egill Fáfnis var kosinn forseti
kirkjufélagsins í stað séra Haralds Sigmars, sem baðst undan
kosningu. Skrifari var kosinn séra Bjarni A. Bjarnason. Séra
Sigurður Ólafsson er sem fyr ritstjóri Sameiningarinnar og fé-
hirðir Sigtryggur Bjerring.
Sýning á kirkjugripum.
Frú Unnur Ólafsdóttir hefir haft sýningu á ýmsum fögrum
kirkjugripum í kapellu Háskólans og á Akureyri í júlí og
ágústmánuði. Öllu því fé, sem safnazt heffir á sýningunni,
hefir frúin ákveðið að verja til styrktar blindum. Skiptir það
nokkrum þúsundum króna.
Vísitaziuför biskup&.
í fyrri hluta ágústmánaðar vísiteraði biskupinn kirkjur og
prestssetur i Rangárvallaprófastsdæmi.