Kirkjuritið - 01.07.1947, Síða 90
270
Fréttir.
Júlí-Okt.
Framkvæmdastjóri Brezka Biblíufélagsins
dr. John R. Temple var hér á ferð í sumar og sat fund mtð
stjórn Hins íslenzka Biblíufélags. Varð að samkomulagi, að
Brezka .Bihlíufélagið skyldi þegar hefja útgáfu Biblíunnar á
ísienzku.
Aðalfundur Prestafélags Austurlands
var haldin á Vopnafirði 16. og 17. ágúst og var allvel sóttui
Aðalumræðuefni fundarins voru:
1. Heimilisguðrækni, frsm. séra Sigmar Torfason. Urðu all-
miklar umræður um málið, og var einkum rætt um það,
hvað gera þyrfti til þess að endurvekja hana í landinu.
2. Drengskaparhugsjón kristins manns, frsm. séra Jakoh
Einarsson. Var mál þetta rætt á sameiginlegum fundi prestanna
og barnakennara Austurlands, sem einnig voru mættir þarna
á aðalfundi Kennarasambandsins. Eftir alifjörugar og upp-
bygg'ilegar ræður, var svohljóðandi tillaga frá frsm. borin
upp til atkvæða og samþykkt í einu hljóði:
„Fundurinn telur, að hin norræna drengskaparhugsjón sé
ein af sterkustu stoðum undir siðgæðisuppeldi þjóðarinnar.
Teiur hann, að beina þurfi siðgæðisuppeldi barna vorra í þá
átt, að innræta þeim heilinda- og hetjulund, samfara réttlæti og
kærleika og bendir á dæmi Jesú Krists sem hina fegurstu
fyrirmynd kristins drengskaparmanns“.
í sambandi við prestafundinn predikuðu: i Vopnafjarðar-
kirkju séra Pétur Magnússn, fyrir altari séra Sigmar Torfa-
son, en í Hofkirkju séra Sigurður Jónsson, fyrir altari séra
Jakoh Einarsson.
Erindi fyrir almenning flutti séra Pétur Magnússon i Vopna-
fjarðarkirkju að kveldi hins fyrra fundardags.
Á heimleiðinni voru bæði prestar og kennarar boðnir til
kaffidrykkju að Hofi. Dvöldu þeir góða stund á hinu veglega
heimili prófastshjónanna i mildum fagnaði við söng og ræðu-
liöld.
Stjórn prestafélagsdeildarinnar skipa nú: Séra Pétur Magnús-
son, formaður; séra Þorgeir Jónsson og Haraldur Jónasson.
Leiðréttingar.
I næstsíðustu Ijóðlínu í 2. versi sálmsins á bls. 38 i janúar-
hefti Kirkjuritsins þ. á. hefir orðið prentvilla. Ljóðlínan á að
vera svona: Og geisli frá þér gegnum sortann brautzt. Apr-júní
hefti, bls. 110: Fæðingardagur séra Kristins Daníelssonar á að
vera 18. febr.