Nýjar kvöldvökur - 01.07.1945, Side 17

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1945, Side 17
IN.Tfcv, SÆNSKIR HÖFÐINGJAR ísins, ræfill á heimili sínu og svikari gagn- ’vart vini sínum. — Það var ég, sem byrjaði að tala um ást- ina, meistari, ekki þú, sagði Bengt. — En það var ég, sem kom þér til þess, svaraði meistarinn, og nú hefi ég þig á vog- inni. — Þú og ást þín eruð eitt. Þar ert þú heill og óskiptur. Það merkir, að þú ert gæða-maður, en ekki fæddur til að fram- kvaema nein stórvirki. Værirðu það mundir þ)ú kveinka þér við að finna þig vera tekinn til fanga og tafinn á braut þinni. — Meistari Andreas, sagði Bengt — hættu nú að fara hörðum orðum um þessa tilfinn- ingu, sem er mér allt. — Allt, segir þú. Þú átt ekkert eftir, þeg- ar þessi kennd þín einhvern tíma brennur .. út og fellur í ösku. Og falla hlýtur hún. . . . Ég, sem er vanur að rnóta og nota hringfara — ég veit, hvað ástin er: Hún er boglínan í hnénu. Hún er hálfhringur brjóstsins. Að þeim hálfhring þrýstir söngvarinn enni sínu í sturlun, og þá tónar harpan! Það er broslegt — en það er um leið hjartaskerandi. — Skelfing er heiti þess dags, er lína hálf- hringsins skorpnar saman og aflagast, svo að hún á ekki lengur við hringfarann minn .... Heilbrigðin og fegurðin þrá að sam- einast til framtímgunar, viðhalds og fram- fara mannkynsins. Hvað mundi af því leiða, ef kerlingarfita og ljótleiki, flöt brjóst og rauð andlit vektu sörnu þrá? En um allt þetta talar fólk sviksamlega af ótta. — Sjálf- ur er ég haldinn af sama óttanum, og ég flý ástina eins og verstu ógæfu. — Þú talar eins og munkur. — Það geri ég vegna þess, að munkarnir hafa rétt að mæla. . . . Þegar tímar líða, munum við aftur talast við. Meistari Andreas stóð á fætur os; leit á hópinn, sem saman var kominn í ölkjallar- anum. Hann var klæddur í dökka, skraut- lausa yfirhöfn, og hann hafði þann vana að kreista við og við hringfara úr járni, sem hann hafði stungið undir beltið. 103 — Hermenn, hljóðfæraleikarar, hand- verksmenn! sagði hann. — Þið hafið heyrt samræðu okkar, og þetta vil ég nú segja; ykkur: Hættið að syngja amorsvísur, hættið að sækjast eftir konum, því að bráðlega munum við allir sitja á bekkjunum aflóga og deyjandi og iðrast, að við vörðum ekki stundum lífsins betur en við gerðum. Ég hata ástina — lostann, vegna þess að hann rænir okkur herraveldinu yfir eigin gerðum og er okkur til hindrunar í að framkvæma þau verk, sem við eigum að vinna. . . . Sjálf- ur er ég kvæntur maður, þótt ég nú hafi skilið konu og börn eftir heima. — Ég skora á ykkur, svo framarlega sem ærleg hjörtu slá í brjóstum ykkar, að við nú allir tök- umst í hendur og stofnum með okkur frjálst og nafnlaust bræðralag og heitum því, að við jafnan skulum heiðra okkur sjálfa með ráðvöndu framferði. Sumir drykkjukapparnir höfðu ekkert svar við orðum hans annað en háreysti og hlátur, en hinir voru samt fleiri, sem ýttu krúsum og könnum frá sér og þyrptust að honum. — Þú óttast, meistarisögðu þeir — að veraldlegar hugsanir muni trufla þig við verk þitt — hina fyrirhuguðu mynd, sem vissulga mun verða dýrleg að skoða. — Bless- aður veri sá dagur, þegar við fáum að sjá það verk fullkomnað og heilsa því í kirkj- unni! Hvað er það nú, sem það á að tákna? Sankti Göran, sem frelsar konungsdóttirina úr klóm drekans! Það táknar hið fagra, jóm- frúlíka Svíaríki, sem nú er frelsað úr klóm kúgarans! — Já, þannig hefir herra Steinn Sture hugsað sér það, góðir menn, svaraði meist- arinn. — En ég get ekki skorið myndina út eftir neinu öðru en mínum eigin hugmynd- um. Bengt Hake spratt á fætur, faðmaði meist- arann að sér og kyssti hann á báðar kinnar. — í ljósbirtunni talið þið allir eins og hræsnarar! hrópaði hann. — En litla trú

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.