Nýjar kvöldvökur - 01.07.1945, Qupperneq 24

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1945, Qupperneq 24
110 SÆNSKIR HÖFÐINGJAR N. Kv- hennar, og það heyrðist lágur niður af að- dáun meðal áhorfendanna: Aldrei hafði neinn í löndum Svíþjóðar séð dýrlegra lista- verk — og aldrei nokkurt verk, sem jafnast gæti á við það í hreinleika og fegurð. Bengt flýtti sér upp að íbúðarhúsinu til þess að kalla á Mettu. En hún hafði sofið fram á hábjartan dag og sat nú uppi í svala- ganginum, grábleik með úfið og ógreitt hár. Hún leit ekki við lionum, en kroppaði með nöglunum í stólpana, þar sem þeir voru orðnir feysknir af vindi og veðrum. — Bengt tyllti sér á tá, seildist upp til hennar og klappaði á hönd hennar. — Þú skalt ekki vera mér gröm, elsku hjartað mitt, sagði hann, þótt ég hafi verið undarlegur og í þungu skapi undanfarið, ég veit ekki sjálfur af hverju það hefir stafað. Láttu það nú allt vera gleymt, og komdu niður í sjóbúðina og stattu sem fyrirmynd hjá meistaranum. Mynd kóngsdótturinnar er eins og þú — alveg lífs-lifandi! og ég er sæll og stoltur yfir að vita, að það er mvnd þín. En allra glaðastur er ég þó í meðvit- undinni um, að það eru hinar heiðarlegu liendur meistara Andresar, sem skapað liafa þetta listaverk, því að ég elska hann eins og hann væri faðir minn og bróðir — hvoru tveggja í einu. Metta sat hreyfingarlaus, en hann greip hönd hennar og hélt áfram að tala: — Búðu þig nú, Metta, farðu í sunnu- dagafötin þín og settu á þig hálsfesti. Og segðu svo stúlkunum að flytja borðið og bekkina út á grasflötina og bera þar á borð fyrir gesti okkar. Nú skulum við sannarlega heiðra meistarann. Heiðurssessinn á milli okkar skal hann skipa! — Gæti ég aðeins einu sinni enn á æv- inni orðið eins hamingjusöm og ég var, þeg- ar ég fluttist hingað í garðinn, sagði Metta. — Nú er þunglyndiskast í þér, Metta, sagði Bengt, því að þú ert aldrei eins nema litla stund í einu. Þú ert eins og gimsteinn- inn, síbreytileg, eftir því, hvernig ljósið leikur um hann. Skiptu því skapi einu sinni. enn og láttu ljósið endurspeglast! — Þetta segir þú alveg satt! hrópaði hún... Ég er síbreytiieg — og nú vil ég vera glöð, glöð, glöð! Hún opnaði kistur og skápa, og allt, seru; hún átti bezt til skarts, tók hún fram. Þegar hún stóð alklædd í hátíðabúningi sínum,. kom Bengt, lét á hana hálsfestina og kysstí hana. Hún tók dansspor, þegar hann leiddí hana niður tröppurnar. Og úti í garðinum hjálpaði hún til með að koma borðunum fyrir, og hún fléttaði blómsturkrans og lagði utanum hvern disk. Að því loknu fór hún sjálf og sótti alla gestina, og meistara. Andreas lét hún setjast við hlið sér. Þegar hún nú bauð honum vín úr könnunni, varð- hann líka gripinn af gáska hennar. Hann stökk upp á bekkinn, þrýsti bikarnum að hjartanu og hélt ræðu um hina endur- fundnu Paradís og um sólargeislana, sem' endui'spegluðust eins og titrandi spöng milli kaupmannaskútnannaávatninu.Hann fékk ómótstæðilega löngun til að gera gys að hættunni á sama hátt og skálkur, sem leggur land undir fót, en stanzar undir gálganumi og hnýtir hnúta á snöruna. — Það er aðeins eitt, sem hér vantarl hrópaði hann. H1 jóðfæraleikararnir urðu forvitnir, þeir kipptu í ermi hans og spurðu: — Og hvað er það, meistari? — Gorius trésmiður! — Ha, ha, ha. Já! Gorius trésmiður væri einmitt falleg perla að tengja inn í festina, hlógu þeir. — Þið hefðuð átt að koma með hann líka, svo að dagsbirtan gæti einu sinni skinið í augun á honum. Og svo hefði ég getað sýnt honum, hvernig farið er að því að fullgera mynd jómfrúarinnar! — Varaðu þig, meistari, sögðu hinir gest- irnir. — Hann er hættulegur maður. Hon- um þarf enginn að bjóða. Áður en dagur er
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.