Nýjar kvöldvökur - 01.07.1945, Blaðsíða 29

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1945, Blaðsíða 29
N. Kv. SÆNSKIR HÖFÐINGJAR 115 agsandahúsið".1) En ég er alveg sannfærður um, að þegar þú ert búinn að drekka bikar af góðu víni og hefir fengið þér góðan hlát- ur í vinahópnum, þá verður þú aftur eins og maður. — Já, Bengt. Geti ég aðeins fengið mér góðan hlátur, þá verð ég aftur eins og ég á að mér, svaraði meistarinn. Þeir lögðu af stað út í myrkrið og þreif- uðu sig áfram yfir döggvott grasið í garðin- um. En er þeir komu að garðshliðinu, stanz- aði meistari Andreas snögglega. — Heyrir þú ekki neitt? hvíslaði hann. — Hvað hefði ég átt að heyra? svaraði Bengt. — Það skrjáfaði í einhverju uppi í svala- ganginum — h'kast því að einhver hefði dregið dúk eftir gólfinu. — O — það er víst hún Metta, sem hefir verið að gæta að, hvort mér mundi takast að fá þig með mér út til vinanna, sagði Bengt. — Og ef ég hefði nú ekki farið með þér? — Nú, þá vissi hún, að ég Iiefði farið ein- samall. —• Við skulum flýta okkur! — Já, en það varst þú, sent stanzaðir, meistari. Þeir héldu áfram rnilli garða og húsa, sem mörg voru enn í rústum eftir síðasta ófrið. Á einum stað, þar sem viðarkol og aska brakaði undir fótunum, höfðu nokkrir beiningamenn og holdsveikir kveikt upp eld á tígulsteinshlóðunum, sem stóðu einar eftir af húsinu. Maður með tréfót og hækju, sagði aðkomumönnunum, að einmitt á jress- um stað hefði hann hjálpað til að grafa nokkra fallna, danska riddara, og þegar þeir gálu honum ölmusu, þakkaði hann og bað þá umfram allt að vanrækja ekki að fara inn í Stórkirkjuna og skoða hið fagra minnis- merki, sem þar hefði nú verið reist til minn- ingar um sigurinn. Sums staðar var jarðvegurinn svo blautur, að þeir urðu að stikla á stokkum og stein- um, og liinn stríði straumur, sem rann vinstra megin við gangstíginn, skvetti vatni á klæði þeirra. I borgarhliðinu rannsakaði vörðiirinn þá nákvæmlega við skriðljós sitt, áður en þeir fengju leyfi til að halda lengra. En inni í sjálfri borginni sást jjað á öllu, að þar var hátíð, því að fólk var ennþá á ferli, og ennþá heyrðist fótatak og þýzk orð í hin- um bröttu, þröngu götum. Hátíðaklæddir kaupmenn komu ásamt konum sínum frá gildaskálunum með blys í höndum, og birkilaufskransar sáust hanga hér og þar yf- ir húsdyrunum. Bráðlega gullu við fagnaðaróp, og meist- ari Andreas var umkringdur af óþreyjufull- um vinum, sem langaði til að fá hann með sér í ,,Ráðskjallarann“. En hann var svo annars hugar, jjegar liann svaraði kveðjum þeirra, að þeir spurðu undrandi, hvort hann Jrekkti þá ekki — og enn einu sinni tóku þeir eftir, að það var einhver hula yfir aug- um hans, eins og hann horfði inn í höfuðið á sjálfum sér og sæi ekki ]:>á, sem hann tal- aði við. Þegar Jreir komu að kirkjunni, námu þeir staðar og Bengt benti á lítinn, rauðleitan neista, sem lýsti fyrir innan gluggann. — Taktu eftir Jressum neista, meistari, sagði hann. Það ert þú og enginn annar, sem hann hefir tendrað. Þetta er hjaltið á sverði sankti Görans, sem lýsir í skini hins eilífa lampa. Jafnvel í myrkrinu berst hann ennþá við drekann — við synd lostans, sem Jrú hatar! Meistari Andreas sleppti handlegg hans og teiknaði eitthvað með fætinum á götu- steinana. Það var engu líkara, en hann væri að leita að ráðningu á gamalli gátu. — Að hata — hata lostann — hata ástina? sagði hann. Það er eins og að segja: Ég hata loftið, ég hata vatnið, ég hata mitt eigið auga! Hvaða gagn er að hatrinu? Það er orð í reiði — og ekkert meira. — Hefi ég Jrá farið villur vegar. . . .? Mun sankti Göran fleygja 15* 3) Spítali — m. a. fyrir geðveika.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.