Nýjar kvöldvökur - 01.07.1945, Side 30

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1945, Side 30
116 SÆNSKIR HÖFÐINGJAR N. Kv frá sér vopnunum. . . .? Er það eldur hins eilífa Guðs, sem blossar, jafnvel í kjafti drekans? — Hann hefir ofþreytt sig við vinnuna, og bráðlega hnígur hann máttvana niður, ef við fáurn hann ekki með okkur undir eins, hvíslaði Bengt að félögum sínum. Samt þorði enginn þeirra að grípa til hans og styðja iiann, og hann hélt áfram, talaði hægt — leitaði að orðum: — 1 myrkri hefi ég gengið, og myrk voru orð mín — í gátum hefi ég talað. Hata ást- ina.... Það eru svikin í ástinni, sem ég hata. Það er hinn Ijúgandi og smjúgandi þjófnaður, senr þolir ekki dagsbirtuna. . . . Fyrst kemur það — eins og ofurlítil, hál og slímug naðra... . Bengt! Bengt! komdu hingað — komdu svolítið nær. . . . Sér þú, Bengt? Þarna — sjáðu, þarna í skotinu við gráa húsið. . . . — Víst sé ég, meistari, svaraði Bengt. Það er ekkert nema hermaður, sem er að klifra inn um glugga til kærustunnar sinnar. . . . Ég þekki hann vel — get meira að segja sagt þér, livað hann heitir. — Nú. . . . liann heitir? — Áðui var hann nú ekki nema venjuleg- ur bóndapiltur og var kallaður Björn sterki. En í orrustunni á Brunkeberg gekk hann fremstur á undan hesti herra Steins Sture. — Hann er hraustur hermaður og ofurhugi, svo að þú skalt ekki segja neitt slæmt um hann. — Og hann er jafn ærlegur og trúfastur, eins og hann er hraustur og djarfur? — Það getur þú reitt þig á. — Við Svíar erum ærleg þjóð! — En í ástum — þar stelur bróðir frá bróður, systir frá systur, vinir frá vinum — og þá fremja hetjur innbrot og skríða inn um glugga. — Hliðið er sjálfsagt læst. — Þú ættir að vera maður til að ganga fram hjá. — Það er nú auðvelt að segja, meistari. — Hann ætti að minnsta kosti að brjóta rúðuna, svo að brothljóðið og glamrið heyr- ist. . . . Fyrst kemur naðra þjófnaðarins. Hún er Iítil og hrædd, og okkur þykir gam- an að sjá hversu fljót hún er að hringa sig og skjótast undan. En hún vex og vex, fær vængi og klær og eitur hennar flekkar jafn- vel hin skínandi herklæði. Hún er orðin að drekanum, sem reisir sig upp úr saurindum jarðarinnar til þess að tæta í sundur og eyðileggja — og að lokum liggja allt um- hverfis hana nagaðar beinagrindur af ver- um, sem einu sinni voru börn ljóssins. Nú heyrist skyndilega köll og hávaði frá torginu og næturverðirnir hlupu af stað. Meistari Andreas litaðist um, eins og hann vaknaði og nú fyrst yrði var við hina mörgu vini, sem komnir voru til að mæta honum. Hann veifaði til þeirra, sem lengst voru burtu og benti þeim að flýta sér. Svo gekk hann með hröðum skrefum yfir torgið, sem var fullt af smá fjalabúðum, markaðsvör- um, körfum og hestum, sem stóðu bundnir og átu hafrana sína í makindum af vagna- botnunum. Meistari Andreas ruddi sér braut gegnum allt þetta og stökk yfir pok- ana, sem lágu þvert yfir stíginn. Rétt við dyr „Ráðskjallarans”“ höfðu tveir næturverðir gripið tötralegan betlara og þrýstu honum upp að einum stólpanum undir svölunum. Hann titraði og skalf, taut- aði einhver sundurlaus orð og reyndi að slíta sig lausan. — Hvað hefir nú þessi aumingi brotið af sér? spurði meistari Andreas og gerði hreyf- ingu, sem sýndi, að hann ætlaði að hjálpa fanganum. — Það varðar þig ekkert um, svaraði ann- ar næturvörðurinn — og það jafnvel þótt við vitum, að þú sért enginn annar en meist- ari Andreas sjálfur. — Sleppið þið manninum — eða segið að minnsta kostí, hvað hann hefir gert af sérl — Hann hefir stolið. — Hverju hefir hann þá stolið? Hefir

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.