Nýjar kvöldvökur - 01.07.1945, Qupperneq 35

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1945, Qupperneq 35
N. Kv. VITASTÍGURINN 121 í svipbreytingum hans; en í dag sá hún í svip hans einhvern annarlegan blæ, sem hún hafði ekki orðið vör við áður. Þar var sam- anþjappaður þróttur, sem lýsti ósveigjan- legum vilja, og sá eldur í augum, sem bar vott um, að einhver gagngerð breyting væri um garð gengin. „Hérna er bréf, sem ég'fékk frá Jens í dag,“ sagði liann rólega. „Hann er vonandi ekki búinn að trúlof- ast henni?“ Hún laut fram á borðið og leit framan í hann. „Hann er kvæntur," sagði Sylvester, „þú getur iesið það sjálf,“ Hann rétti henni bréfið. En hún hratt því frá sér. „Ég les ekki bréf annarra — er Jens kvænt- ur henni?“ „Henni, já.“ „Telpan úr fjölleikatjaldinu húsfrú á Bjarkasetri!" Hún fleygði sér fram á borðið og faldi andlitið í höndum sér. „Faðir minn, faðir minn, getur þú ekki li jálpað mér.“ Hún snökti. Þetta var í fyrsta sinn, sem Sylvester Bramer hafði séð konu sína gráta. Hann stóð upp, gekk til hennar og lyfti upp höfði hennar. „Nóra, taktu nú þessu skynsamlega. Þetta getur orðið okkur til góðs — og Jens til ham- ingju — einkabarninu okkar.“ „Gæti mér aðeins skilizt það — en nei, nei, Sylvester, þetta er alveg ófært, það er hræðilegt!" Hún liélt áfram að snökta. Hann sat lengi og spjallaði góðlátlega við hana. Einu sinni reyndi hann að taka hönd hennar og klappa henni, en hún kippti henni að sér. Svo sagði hann henni, að brúð- kaupið hefði staðið fyrir nokkrum dögum, og að Stolz og Gottlieb hefðu farið til Ósló- ar í tilefni af því. „Gottlieb? Alltaf liefir hann valdið okk- ur einhverri óhamingju." „Já, en nú mun hann færa okkur ham- ingju, Nóra. — Hún mun gera Jens ham- ingjusaman, og að þessu sinni skaltu taka vel á móti henni, Nóra, vegna Jens, og einn- ig mín vegna.“ Hann rétti henni hendurn- ar og leit á liana bænaraugum, en hún hreyfði sig ekki. Tárin voru nú horfin úr augum hennar. Litla andlitið skarpleita var nú komið í sínar gömlu fellingar. Hún var nú á ný húsfrúin á Bjarkasetri, dóttir Feng- ers biskups, og ekkert annað. ,,Þú hefir teflt á tvær hættur, Sylvester," sagði hún og stóð upp frá borðinu. „Teningunum er varpað, og ég tek á mig ábyrgðina," sagði hann stillilega. Miðdegisverðinum var lokið. Hún rétti honum hönd sína að vanda, og hann laut djúpt og virðulega og kyssti á höndina. Þannig höfðu þau gengið frá borðum að loknum miðdegisverði á hverjum degi öll þessi ár, breytingarlaust. Allt var lýtalaust. Tveim dögum síðar beið Sylvester þre- menninganna uppi í „Sælureit". Hann hall- aði sér upp að öðrum steinkofanum litla og var að hugsa um, hvað Gottlieb hefði ann- ars verið heimskur að ætla sér að skríða inn um litlu dyrnar hérna. Hann brosti. í hvert sinn, sem hann átti við einhverjar áhyggjur að stríða, hvarflaði hann huganum til bernskuáranna, því að jrá \'ar sem kæmi hann út í sólskinið á ný, yrði ungur og glað- ur í huga og gleymdi áhyggjum sínum. Honum var þungt í huga, að hann skyldi hafa þurft að fara á bak við konu sína með málefni, sem jreim báðum var Jx> mjög hjartfólgið. Þetta var í fyrsta sinn á ævinni, sem hann hafði hagað sér miður drengi- lega. Honum féll orð ]>etta svo eðlilega í hug, þ\ i að kona hans notaði það ætíð. Það, senr ekki var óaðfinnanlegt, var að hennar dómi ódrengilegt. Nú átti hann að leiða son sinn og brúði hans inn á Bjarkasetur. Gæti hann gert það með glöðum huga og borið höfuðið hátt? Það, sem hann hafði að- hafzt, var hyggilega gert og hagkvæmt. í rauninni hafði Jrað \ erið eins og að höggva á óleysandi hnút; og án þess hefði þetta orð- ið óviðráðanleg flækja af erfiðleikum og ef 16
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Nýjar kvöldvökur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.