Nýjar kvöldvökur - 01.07.1945, Blaðsíða 47

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1945, Blaðsíða 47
,TNT. Kv. VITASTlGURINN 133 hún líka að fara á fund hans og leita ráða? Tilvera hennar og líðan öll var nú óþrotleg- ar kvalir og kvíði, Vítiskvalir og kvíði fyrir einhverju, sem hún gat ekki áttað sig á, hvað væri, einhverju ægilegu. Ef til vill staf- .aði þetta allt af því, að hún „var ekki sterk fyrir hjartanu‘7 Eftir hádegið sagði frú Bramer fyrir, að koma skyldi með skyggnisvagninn að dyrun- um. Hún ætlaði ofan til bæjarins, Jón ekill hafði ekki þurft að hreyfa sig langtímum saman, og þótti honunr því vænt um þessi boð. Hann hlúði vel að frúnni með sjölum og ábreiðum, áður en ekið var af stað. Hon- um virtist frú Bramer vera orðin afar föl og mögur. Þau námu staðar uppi í brekkunni, og hann sá, að hún stefndi upp að vitanum. Honum virtist hálf furðulegt, að hún skyldi áræða að leggja á þennan bratta; en hún ætlaði sennilega að heilsa upp á þetta nýja tengdafólk, hugsaði hann með sér. Hann smeygði síðan steinum aftur undir aftur- hjólin, svo að hestarnir gætu hvílt sig, lét í pípu sína og Jeit síðan út yfir bæinn. Hann var svo fallegur í dag, fjöldi fána var dreg- inn að hún, svo að ætla mætti, að það væri afmælisdagur konungsins. — Frú Bramer varð að setjast niður og hvíla sig öðru hvoru; hún fékk svo mikinn hjartslátt af göngunni, er hún var komin upp bröttustu hrekkuna. Loksins var hún þá kornin alveg upp og sá heim til vitans. Hún var að skyggja hönd fyrir auga, því að hvíturliturtunglsinsskarí augun. Hún drap hægt og hikandi á dyr, en enginn svaraði. Hún opnaði síðan hurðina og gekk inn í stofuna. Hún nam staðar og lét augun hvarfla um stofuna alla. Augu hennar námu staðar við hinn stranga svip afa gamla admíráls. Það var eins og hann spyrði hana með þótta: „Hvað vilt Jrú hing- að?“ Hún leit inn í litla herbergið, þar sem rúm Benediktu var enn, eins og áður. Á veggnum hékk mynd af Jens í útskornum ramma. Hún heyrði enga hreyfing eða hljóð og settist því niður til að hvíla sig. Það var svo einkennilega hljótt og friðsælt hér efra. Það var einnig hljótt á Bjarkasetri, en þó ekki á þennan hátt. Skömmu síðar heyrði hún fótatak yfir höfði sér. Það hlaut að vera uppi í turnin- um? Hún litaðist um og sá þá litla hurð innst í stofunni og opnaði hana; þar var stigi. Ætti hún að fara þar upp til að hitta fólk? Ekki gat hún setið hér til lengdar ein- sömul í ókunnugu húsi, og hún heyrði stöð- ugt fótatak þarna uppi. Ef til vill væri það vitavörðurinn? Hún fór að ganga upp þröngan stigann. Hann var mjög brattur, svo að liún orkaði ekki að stíga meira en tvö-þrjú þrep í einu og varð síðan að hvíla sig. Loksins komst hún samt upp og drap á litla, mjóa hurð, rnjög létt. Er enginn svaraði, varð hún að berja sterkara. „Kom inn,“ var kallað djúpum rómi. Það var vitavörðurinn. Adam Stolz hörfaði ofur- lítið aftur á bak, er hann sá frú Bramer. „Nei, en góða frú Bramer, komið þér alla leið hingað upp?“ „Ég er svo Jneytt, herra Stolz, má ég tylla mér ofurlítið niður?“ Hún litaðist um eftir stól. Hann setti fram stól handa lienni, og hún hneig niður á hann, alveg dauðupp- gefin. „Þetta er alltof erfitt ferðalag fyrir yður og meira að segja hingað upp í turninn, frú Bramer." „Það var enginn niðri, og svo var það nú við yður, sem ég ætlaði að tala, herra Stolz,“ sagði liún og þrýsti hendinni að brjósti sér. „Fyrirgefið þér, en það líður dálítil stund, áður en ég næ andanum aftur. Stiginn, skiljið þér —Hún brosti ofurlítið. Hann færði henni vatn í glasi. „Þakka yður fyrir, nú er ég bráðum búin að ná mér aftur.“ „Það er fallegt hérna uno frá,“ sagði hún og leit út á hafið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Nýjar kvöldvökur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.