Nýjar kvöldvökur - 01.07.1945, Side 53

Nýjar kvöldvökur - 01.07.1945, Side 53
N. Kv. FLÓTTAMENNIRNIR 139 þungt andann, en hann virtist ekki vera neitt verri. Ég spurði: „Hvað skeði svo?“ „Þá. ... sló ég hann. Ég sló hann utan undir.“ „Hvers vegna gerðir þú það?“ Telez sneri sér undan. „Hann kallaði mig tíkarson, svo að ég sló hann. Ég vildi, að ég hefði gert alveg út af við hann. Hundinn þann arna!“ „Hvernig fór hann að meiða þig?“ spurði ég- „Hann þreif hnífinn minn,“ sagði Telez. „En ég náði honum aftur. Ég stakk hann líka. í handlegginn. Svo hljóp ég af stað. Ég gekk hálfa nóttina." „Hvað gerði DuFond?“ Telez yppti öxlum. . . . „Hann er hrædd- ur við Verne.“ Hann tók um öxlina. „En ég er ekki hræddur við hann. Mér skal takast að koma honum fyrir kattarnef." „Svo þeir eru þá á leiðinni," sagði ég. „Hann er með kvenmann með sér,“ sagði Telez. „Negrastúlku. Það er vændiskona. Hann sagði henni, að hann ætlaði að taka hana með sér til Ameríku. Það er allt og surnt. Og lofið þið mér nú að liafa frið.“ Við sátum aftur Iengi þegjandi. Andar- dráttur Molls var farinn að verða nokkuð óreglulegur. Það gerði mig órólegan. Bólg- an var svipuð. Slagæðin var næstum eins og hún átti að vera. Eftir nokkra stund fór ég að handfjalla hlutina, sem ég hafði tekið úr vösum hans. Ég stakk á mig eldspýtunum, og fór að reyna að sjá á landabréfið; en tunglsljósið var farið að dofna og ég gat ekki greint neitt á því. Ég braut það sarnan og stakk því í vasa minn. Svo leit ég á átta- vitann, en það var of dimmt til að sjá nál- ina. Ég lét hann hjá landabréfinu. Ég fór að þreifa í kringum mig eftir gömlu biblí- unni, en gat ekki fundið hana. Ég tautaði: „Það var einkennilegt," og hélt áfram að þreifa í sandinum. „Ég er með hana,“ sagði Cambreau. „Með hverja?“ spurði ég. „Það, sem þú ert að leita að.“ „Láttu mig þá hafa hana,“ sagði ég. „Þú átt ekkert í henni. Moll á hana. Ég ætla að hafa hana með hinu, sem hann á.“ Hann dró biblíuna upp úr buxnavasa sínum og rétti mér hana. „Þú ættir að lesa hana,“ sagði hann við mig og bætti svo við, „Moll þarf hennar ekki lengur með.“ Telez færði sig ögn lengra burtu. „Þessi maður er djöfull," sagði hann hásum rómi. Ég titraði svolítið og lagði biblíuna niður við hlið mér. Ég andaði djúpt að mér, og svo spurði ég Cambreau: „Ertu djöfull?" Cambreau varð hissa á svipinn. „Hvers vegna spyrðu að því, læknir?“ „Þú ert svo — ja, einkennilegur," sagði ég. „Og svo veiztu óorðna hluti.“ Það var löng þögn. „Jæja. . . . spurði harin, „hversvegnadjöf- ull? Því ekki engill?. . . . Englar geta séð ýmislegt fyrirfram, er það ekki?“ Það fór hrollur um mig og ég spurði: „Hver ertu annars, Jean?“ „Djöfull!“ sagði Telez aftur. Cambreau andvarpaði. „Það er alveg sama. Einhvern tíma muntu sjá mig eins og ég er.“ Ég horfði á hann, og ég skalf ennþá. Hann reis á fætur og horfði hugsandi á mig. Að lokum brosti hann. „Flaubert kemur h'klega bráðum," sagði hann. „\7ertu ekki hræddur, jregar þú sérð hann. Hann er sjálfsagt mjög æstur.“ Hann hélt af stað vestur eftir ströndinni og hvarf brátt í skugga. VI. Flaubert kom. Ég hafði sofnað fast og þegar ég vaknaði, var mér ískalt Mig sveið Hka í rispurnar. Fyyst hélt ég að það hefði vakið niig; en svo var ekki. Ég skimaði í kringum mig og sá 18»

x

Nýjar kvöldvökur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýjar kvöldvökur
https://timarit.is/publication/511

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.