Eimreiðin - 01.07.1927, Page 34
226 TRÚIN Á JESÚM KRIST, GUÐSSON eimreidiN
runnu þær einmitt saman. Til þess að hinn guðdómlegi and-
inn, hin himneska veran, saurgaðist ekki af líkamanum, héldu
menn að sá líkami hlyti að hafa verið orðinn til með yfir-
náttúrlegum hætti.
Eg má ekki eyða tíma í að útskýra þetta frekara. Það yrði
of langt mál. Menn hafa réttilega bent á, að meyjarfæðingin
(svo er þessi kenning oftast nefnd) sanni bæði of mikið og of
lítið. Jesús sé ekki sannur maður, ef hann eigi ekki jarð-
neskan föður, og hins vegar sé tryggingin eigi nægileg, því
að hið synduga eða óhreina í líkamseðli mannanna hefði get-
að náð til hans frá móðurinni. Og margir telja þessa kenning
einmitt varhugaverða frá þessari hlið. Hún virðist runnin frá
þeirri skoðun, að kynferðissambandið milli manns og konu og
barngetnaðurinn sé sérstaklega háð syndugleika, og fyrir því
hafi þessi kenning átt sinn þátt í því að varpa óhreinleikablæ
og syndugleika á þann reit mannlífsins, sem í raun réttri er
helgastur allra og jafnvel þeir vísindamenn og Iæknar, sem
litlir trúmenn eru taldir, tala um með djúpsettastri lotning. Einn
af samkennurum mínum sagði eitt sinn við mig: »Ef orð
biblíunnar »Drag skó þína af fótum þér, því að það er heil-
agur staður, sem þú stendur á«, eiga nokkurstaðar við, þá er
það frammi fyrir fósturfræðinni«. Hann er læknir og kennir
meðal annars þá fræðigrein.
I augum nútíðarmanna er sérhver barnsfæðing undursamleg
og lögmálin blátt áfram dásamleg, sem ráða þróun fóstursins.
Þurfti Guð að rjúfa þau lög til þess að geta látið ]esúm fæð-
ast inn í mannheiminn? Jesús sýnist ekki verða neitt dásam-
legri í augum vorum fyrir það. Þeir tímar eru liðnir, er menn
töldu sérhverja opinberun Guðs vera yfirnáttúrlega eða brot
á lögum náttúrunnar. Nú skilst oss, að Guð opinberi sig >
náttúrunni og hvergi greinilegar en í mannlífinu og æfinlega í
samræmi við lögmál þau, er hann hefur sett tilverunni af
vísdómi sínum.
Þótt ég sé sammála þeim biblíufræðingum, er telja langsenni-
legast, að hin eiginlega hugmynd um yfirnáttúrlegan getnað
sé komin frá grískum goðsögnum (ekki sízt eins og henni
er haldið fram hjá Matteusi), og að höfundar N. tm. muni
hafa talið Jesúm vera Jósefsson, þá hef ég aldrei verið þeirr-