Eimreiðin - 01.10.1937, Qupperneq 38
382
]>RÍR MEGINÞÆTTIR
EIMBEIÐIN'
vísindanna, eða sívaxandi þekkingar mannanna, og löngu lið-
inna hugmynda um alheiminn, eða urn guð, freðinn í fornuni
mannasetningum trúarjátninganna? Þar verður auðvitað óum-
ílýjanleg andstæða. Og að svo miklu leyti sem þetta kreddu-
illgresi hefur þakið eða rutt burtu kjarna trúarinnar, þá er aug-
sýnilega ekki um annað að velja en 1) að hreinsa þennan ban-
væna gróður úr hjarta trúarinnar, eða 2) sé það ekki unt, þá
að kasta þessari vonlausu trú, eða 3) að gefa upp vísindin.
í sumurn löndum kynni að verða að velja um tvo síðustu
úrkostina. En til allrar hamingju þarf ekki að velja um
slíkt í Bandaríkjunum. Þar er meira lj'ðræði en nokkurs-
staðar annarsstaðar í heimi, og eigi það að haldast, þurl’a
Bandaríkin öllum löndum fremur kjarna trúarinnar. í þessu
landi hefur trúin getað þróast algerlega lans við afskifti
stjórnmálamanna, og margar greinar liennar liafa getað þró-
ast í fullu frelsi, án aðhalds miðstjórnar. Eg hef sjálfui'
heyrt til tveimur kirkjudeildum, og var önnur sambands-
kirkja og hin fríkirkja, en livorug var bundin af nokkurri
trúarjátningu. Aðrar kirkjur eru sífelt að endurskoða trúar-
játningar sínar eða breyta þeim, eftir því sem þekking vor
vex. I Bandaríkjunum er því ekki minsta ástæða til, að trúin
geti ekki fullkomlega orðið samferða þeirn kröfum, sem sí-
vaxandi skilningur vor á heiminum gerir.1) Hér má íinna
trúarílokka, sem svara til nálega allra þróunarstiga þekking'
ar vorrar og skilnings. Hér þarf því enginn maður að lenda
í öngþveiti milli trúar og vísinda. Það er persónuleg skoðun
mín, að kjarni trúarinnar sé eitl af því, sem heimurinn
þarfnast mest, og ég held, að einhver stærsti skerfur, sem
Bandaríkin nokkurn tíma geta lagt eða munu leggja til frani-
fara heimsins — miklu stærri en nokkur skerfur, sem ver
nokkurntíma höfum lagt eða gelum lagt til stjórnvísinda "
verði fólginn í því að sýna lieiminum dœmi þess, að trúai'Hf
þjóðar getur þróast viturlega, heilsusamlega, fult af andagift
og lotningu, alveg laust við alla heimsku, alla hjátrú og (dl
óheilbrigt tilfinningadekur.
Guðmundur Finnbogason þýddi-
1) Vonandi geta Jiessi ummæli gilt um ísland einnig. Ritstj.