Eimreiðin - 01.10.1937, Síða 60
404
NORÐURHEIMSKAUTSLÖNDIN OG FRAMTÍÐIN eimreiðin
flugferðir milli Rússlands og Ameríku yfir norðurheim-
skautið.
Þó að enn þurfi marga erfiðleika að yfirstíga áður en fast-
ar norðurheimskautsflugferðir komist á fyrir alvöru, þá er það
að áliti flestra sérfræðinga nokkurnveginn víst, að flugferða-
net hnattarins verður ekki hvað sízt þéttriðið á þessum slóð-
um. Auðvitað hefur það í för með sér bæði stjórnmálalegar
og viðskiftalegar breytingar og byltingar, sem enn er hvergi
nærri hægt að sjá fyrir til fulls. En spádómur Vilhjálms
Stefánssonar um að Norðuríshafið verði skyndilega að hinu
eiginlega miðjarðarhafi hnattarins, á þá fyrir sér að rætast
bókstaflega. Þau lönd, sem liggja að Norðuríshafinu, svo sem
Noregur, Síbería, Alaska, Kanada og ísland, færast þá nær
hvert öðru. Asía, Evrópa og Ameríka tengjast nýjum bönd-
uin. Upp rennur ný öld fyrir þjóðirnar á norðurhveli jarðar.
Undanfarna áratugi hafa þjóðirnar smáni saman verið að
skifta upp með sér þeim leifum, sem óskift var af yfirborði
norðurheimskautslandanna. Einkum hafa Rússar og Kanada-
menn sótt markvíst og af miklum dugnaði æ lengra inn á
hin ónumdu svæði norðursins, en af skandinavisku þjóðun-
um hafa Norðmenn verið þar afkastamestir. Það er síður en
svo að þessi lönd séu yfirleitt snauð að hráefnum, þó að
mikill hluti þeirra sé þakinn ísi og snjó. í norðurheimskauts-
löndunum hafa fundist málmar svo sem gull, kopar og járn-
Þar er gnægð af graphit, kryolit og kolum. Steinolía er þa>'
til og jafnvel radium, og við strendur þessara landa eru auð-
ugustu fiskimið heimsins. Engin furða þó að stórveldin líö
þessi lönd hýru auga. Sumar af dýrmætustu auðsuppsprett-
um þjóðanna eru að verða þurausnar. Þannig hafa jarðfræð-
ingar í Bandaríkjunum sagt fyrir, að á árinu 1944 verði stein-
olíuuppsprettur þar í landi á þrotum. Það er þvi ekki að a-
stæðulausu, að sótt er á nýjar slóðir í leit að slíkum verð-
mætum.
Hvíti kynflokkurinn hefur altaf, frá því sögur hófust, verið
á norðurleið. Hann hefur leitað inn í norðlæg héruð til þesS
að gera þau byggileg, og nú er svo langt komið á þessari norð-
urgöngu, að á sjálfu norðurheimskautinu er um þessar
mundir manna-aðsetur. Rómverjinn Tacitus (54—117 e. Kr.)