Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1937, Page 76

Eimreiðin - 01.10.1937, Page 76
420 NONNI ÁTTRÆÐUR EIMBEIÐIN' Stebbi letur mömmu mest, margoft setur værð á frest! Nonni var á sjötta árinu þegar Bogga kendi honum aö lesa. Sóttist honum það fljótt, því hann var með afbrigðum næmur. Las nú Nonni alt sem hönd á festi, „Þúsund og eina nótt“ og önnur slík æfintýri að ógleymdum íslendinga- sögunum, sem hann þreyttist aldrei á. Ein bók var það þ° framar öðrum, sem hafði mikil og djúptæk áhrif á hann og olli honum heilabrota. Það var mannkynssöguágrip ítalska sagnfræðingsins Cesare Cantu.1) Fyrir hugskotssjónum hans rann upp nýr æfintýraheimur, svo undursamlega frábrugð- inn því, sem hann hingað til hafði átt að venjast. Þessum undraheimi varð hann að kynnast af eigin reynd! En hvernig mátti þetta verða? Hvernig átti hann að sjá alla þessa dýrð. sem hann hafði lesið um í þessari bók Cesare Cantu? Hon- uin flaug í hug að gerast inatsveinn á einhverju skipanna, sem svo oft komu til Akureyrar. En slíka hugmvnd hefðu for- eldrar hans aldrei samþykt. „Eg get vel skilið, Nonni minn‘» sagði móðir hans, „að þig langi til þess að ferðast út í heim- inn, sem þú hefur iesið svo margt fallegt um.“ Við þetta sat- — Líða nú hin áhyggjulausu æskuár hans hvert af öðru, unz sá atburður gerist, sem á mjög óvæntan hátt gerbreytir öllu hans lifi og i einni svipan gerir allar hans glæstustu vonir að veruleika. — Þetta var hinn 31. júlí 1870. Veðrið var unaðslegt. Spegil" sléttur fjörðurinn glitraði og glóði í sólskininu og brá rauð- leitum bjarma yfir litla kaupstaðinn. Öll börn, sem vetlingi gátu valdið, voru úti að leika sér, og auðvitað vantaði Nonna ekki í þann hóp. Alt í einu keinur Bogga hlaupandi til hans með þau skilaboð, að mamma vilji undir eins tala við hann. Hvað gat verið á seiði? — Mamma var ekki vön því að kalla hann heim nema eitthvað mikið lægi við. — Nonni hugsar sig um stundarkorn. Hvað skyldi hann nú hafa 11 samvizkunni? Hafði hann krækt sér í sykurmola eða jóla- kökusneið? Eða jafnvel barið Manna litla bróður sinn? 1) Cesare Cantu (1807—1895); ítalskur stjórnmálamaður og sagnfræð- ingur, frægur fyrir rit sitt: „Storia Universale“.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.