Eimreiðin


Eimreiðin - 01.10.1937, Page 96

Eimreiðin - 01.10.1937, Page 96
440 ÖRÆF.4GÖNGUFÖRIN 1908 eimreiðin mjög táknandi, því þetta þýfi er engu líkara en niðurhrundn- um, uppgrónum torfbyggingum. Voru þær á stóru svæði, og mátti því álykta að þarna hai'i verið stórborg til forna. Að fyrstu árkvíslinni komum við kl. 10 þennan dag og urð- um því sárfegnir. Veðrið var afarheitt, enda blækyrt og heiður himinn. Fengum við nú tækifæri til þess að nema staðar og hvílast, fá bita og taka fótabað í kvíslinni, sem var mjög hress- andi. Nú vorum við ekki eins viðkvæmir og þegar við óðum Skjólgdalsá, og vatnið fanst okkur ekki kalt, þótt það væri ný- runnið undan jöklinum. Þenna dag óðum við 11 kvíslar, sum- ar allmiklar og straumharðar, en aðrar lygnar og breiðar með sandbleytu. Flestum kvíslunum gáfum við nöfn eftir útliti þeirra eða vatnsdýpi, svo sem Sokkakvísl, Buxnakvísl °» Naflakvísl eða önnur skáldleg heiti. Ekki gerðum við þó ráð fyrir því, að nöfn þessi yrðu sett á landabréf, enda létum við enga þeirra heita eftir neinum okkar, sem í förinni vorum- Þennan dag um hádegi fundum við lindina, sem Halla segu' Kára frá rétt áður en bygðamenn koma og hún fleygir harm sínu í fossinn. Lýsing hennar er rétt. Það var tær bergvatns- lind, sem vall upp úr keilumyndaðri knéhárri mosaþúfu, er var einstök á sandauðninni, rann fullan hring í kringum þúf" una og hvarf svo niður í sandinn rétt hjá. Samlíkingin við mannsæfina varð til þegar á staðnum. Við töfðum við lindina um % stundar og bergðum af vatninu, sem var hinn bezti svaladrykkur. Veðrið var mjög breytilegt þenna dag. Um ha- degi fór loftið að gulna í suðvestri, og smátt og sinátt breidd- ist guli liturinn út og döknaði. Ennþá var kyrt og heitt og heiður himinn. Um kl. 2 fóru að koma smávindhviður, sem stöðugt ágerðust, svo að um kl. 3 var orðið rokhvast. Sást nu illa til jökla fyrir móðunni, og til austurs yfir Sprengisand var sem að sjá í svartan vegg alt frá jörðu og hátt til himins. Var nú erfitt að halda á móti sandrokinu, sem fylti vit okkar, svo ferðin sóttist mjög seint. Vorum við staddir norður ai Illviðrahnjúkum, er hvassast var. Síðar um daginn laegð* veðrið nokkuð, og þokuslæðingur lagðist ofan á jöklana. Foi nú að rigna og loftið að hreinsast, og voru það góð skiftn Var mjög tafsamt að vaða kvíslarnar og ónotalegt í regninu að fara úr fötunum og í þau aftur. Við þrömmuðum stöðugt
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.