Eimreiðin - 01.10.1937, Side 98
442
eimheiðin
ÖRÆFAGÖNGUFÖRIN 1908
um upp í því mjólkui’-
duft, en hvoi’utveggja
var vont á bragðið.
Þax-na höfðust þau
lengi við Eyvindur og
Halla í xitlegð sinni, og
hafa þau getað iátið sér
líða vel eftir atvikunx.
því í hrauninu í kring
eru smáhellar, sem nxeð
lítilli fyrii-höfn mátti
gera svo við, að tveir
til fjórir inenn gsetn
vel hafst þar við. —
Víða um hraunið eru góðir hagar fyrir sauðfé, og margt
var þar nii af vænu geldfé, sem blés, stappaði og tók á sprett,
þegar lcomið var nálægt því. Einn af hverunum har þesS
sýnileg merki að hann hafði verið notaður til þess að sjóða
í honum, þyí á barmi hans, sín hveru megin, voru allstórir
steinar utan úr hrauninu, og hafa þeir verið fluttir þangaö
til þess að halda uppi priki, sem lagt hefur verið yfir hver-
inn, en á það hefur verið bundin taug, til þess að halda þvl
uppi í hvernum, sem sjóða skyldi.
Útsýni frá Hveravöllum er mikið og fagurt, og nutum við
þess vel, því veður fór altaf batnandi. Hofsjökull er mjög mik-
ill'englegur þaðan að sjá, en af honum lagði geigvænlegan
kuldahroll um okkur alla. Hið efra var hann skjallahvítur
með þokuhólstrum hér og þar, en neðar voru mjög áberandi
hláir og grænir litir óreglulega samanhrærðir. Gerðum við
okkur í hugarlund að þessir litir stöfuðu af skuggum og ljós-
hroti í jökulsprungunum. Frá þessari litasamsetningu fanst
okkur ltuldann leggja, en vera má að tilhugsunin um návist-
ina við jökulinn nóttina áður hafi átt sinn þátt í því að vekja
hrollinn. Öðru máli var að gegna með útsýnið til austurs og þ°
einkum norðurs. Það var mjög hlýlegt öldumyndað flat-
lendi, sem virtist gi'óðursælla því fjær sem dró. — Á Hvera-
völlum töfðum við um 3 stundir, en héldum að því loknu
suður Kjalhraun og tjölduðum í Gi'ánunesi.
r'
Á Hveravöllnm.