Eimreiðin - 01.07.1940, Side 29
eimreiðin
í SÍLÓAM
229
verið á síðustu stundu úr heljargreipum eilífrar glötunar og
útskúfunar:
— Guði sé lof og dýrð! Hallelúja! Amen! Amen! — Halle-
lúja! — Hallelúja! — Hall-e-lúj-a! —----------
Sigursöngvar fjöldans dundu, eins og ægilegur ofviðrisgnýr,
yfir höfðum hinna útskúfuðu, er hnipruðu sig saman og sigu
í kné undir ofurþunga syndabyrða sinna. Holskeflur fagnað-
ai'ins skullu yfir höfuð þeim og keyrðu þá dýpra og dýpra
niður í botnlaust hyldýpi eilifrar útskúfunar. Grátþrungnar
kvalastunur og kæfð neyðaróp tættust sundur og hurfu út í
ofviðri sigurvímunnar. Öll sund voru þeim lokuð. Náðardyr
örottins og hjörtu mannanna. Og þeir sukku og sukku. Og
það var auðn og tóm og eilíft myrkur í kringum þá: Hin yztu
Wyrkur örvæntingarinnar. —
Félagarnir á svölunum sátu hljóðir og hryggir. Aldrei fyr
hafði sál þeirra verið snortin á þennan hátt. Hjörtu þeirra
Voru full hrygðar og sársauka, og ylþrungin bylgja samúðar
°g meðaumkunar gagntók þá alla. Eins og leiftri í náttmyrkri
^rá skyndilega fyrir i huga þeirra fullum skilningi á því ömur-
lega fyrirbrigði, hve margir fyrirfóru sér út úr trúarlegum efa-
Semdum og örvæntingu um sáluhjálp sína. —
Nú grunnbraut um allan salinn. Ógurlegur gnýr fylti hvelf-
lnguna. Og gegnum hrim og bálviðri þustu hinir döldíu fuglar
iungutalaranna.
Flest voru það konur, sem töluðu tungum. Var það auðséð,
er andinn kom yfir þær. Krampakendir drættir fóru um allan
líkama þeirra. Þær mistu alla stjórn á sjálfum sér, og brjál-
‘Oðiskend hrifning tók völdin. Rödd þeirra varð annarleg og
°mensk og minti í upphafi oft á fuglagarg. Síðan varð hún
sambland af barnahjali og óráðsþvogli ölvaðs manns. Um
lungumál var ekki að ræða. Köstin voru oftast stutt og áköf,
með sífeldri endurtekningu tiltölulega fárra og tilhreytingar-
^tilla hljóða. —
Alt í einu hóf sig upp yfir þennan dökka gargandi hóp
Svartur fugl og súgmikill. Rödd hans var sterk, eins og brim-
Suýr á útnesjum, og yfirgnæfði og þaggaði skrækróma kven-
ruddirnar.
I^etta var herðabreiður og samanrekinn sjómaður frá Sunn-