Eimreiðin - 01.07.1940, Page 53
eimreiðin
EFNI OG ORKA
253
Hinn vísindalegi árangur frumeindarannsókanna, með allri
þeirri nýtízku tækni, sem völ er á, er meðal annars þessi:
Það þekkjast 90 frumefni, sem flest eða líklega öll eru sam-
bland af tveimur eða fleiri frumeindategundum, þó þannig,
að eindategundir hvers frumefnis hafa nákvæmlega sömu
efnafræðilega eiginleika. En það orsakast aftur af því, að
kjarnahleðslan er jafnmikil, og þá einnig rafeindafjöldinn,
sem kemst fyrir utan kjarnans. Rafeindakerfin verða þvi ná-
kvæmlega eins gerð, en það er eingöngu skipulag þeirra, sem
ræður efnafræðilegum eiginleikum frumefnanna. Munurinn
á þessum frumeindaafbrigðum er aðeins sá, að kjarnarnir eru
niismunandi þungir, vegna mismunandi fjölda hinna óraf-
niögnuðu frumagna. Yfirleitt yfirgnæfir eitt frumeindaafbrigð-
ið fyrir hvert frumefni, og af sumum þeirra er aðeins lítill
vottur. Þó að efnafræðilegir eiginleikar séu hinir sömu, getur
þó verið sá munur á eindaafbrigðum sama frumefnis, að eitt
sé geislamagnað en annað eða önnur ekki. Eindaafbrigði, sem
svo er ástatt með, sem nú hefur verið lýst, eru kölluð sam-
sætur eða sambýlingar (isotoper), af því að þær eiga heima
á sama stað í hinni alkunnu frumeindatöflu.
Tala frumeindaafbrigða, sem fundist hafa í náttúrunni, er
unr 300. Þar af tilheyra 50 hinum geislamögnuðu efnum. En
við þetta bætast 200 geislamögnuð frumeindaafbrigði, sem
biiin hafa verið til á vélrænan hátt. Er því ekki hægt að segja,
að það hallist á, því að samkvæmt þessu þekkjast þá 250 geisla-
wögnuð frumeindaafbrigði og 250 ógeislamögnuð, eða sam-
tals 500.
Eðlisfræðingar vorra thna munu oft vera spurðir þeirrar
spurningar, hvort hægt sé að búa til radium, og er sú spurn-
lng alls ekki fráleit, samkvæmt því, sem greint hefur verið frá.
bað verður þó að svara henni neitandi enn sem komið er, En
hvað gerir það til, þegar hægt er að framleiða önnur geisla-
uiögnuð efni, sem jafngilda þvi, eða eru jafnvel betri hinu
uáttúrlega radium.
En hvað er svo um gullið að segja? Er hægt að búa það til?
Svarið verður á þá leið, að hægt sé að búa til gull, þ. e. a. s.
gullfrumeindir, sem eru nákvæmlega eins og þær, sem mynda
hið náttúrlega gull. En það er mjög langt frá því, að sú fram-