Eimreiðin - 01.07.1940, Side 64
264
WINSTON CHURCHILL
eimreiðin
Churchill hafði á þingi verið á móti hinum gífurlegu fram-
lögum til flotans, en í júlí 1911 breyttist afstaða hans í þessu
máli. Þá hafði þýzka stjórnin sent fallbyssubátinn Panther
til Marokko. En þetta tiltæki var af enskum og frönskum
stjórnarvöldum talið fyrirboði þess, að Þjóðverjar ætluðu að
skapa sér áhrifasvæði í Marokko og víðar á norðurströnd
Afriku. Þeir Lloyd George, Morley og Churchill, sem þá var
innanríkismálaráðherra, vöknuðu upp við vondan draum, og
Lloyd George hélt ræðu mikla á fundi bankamanna í City, þar
sem hann réðist á Þjóðverja fyrir ágegni þeirra. Churchill, sem
áður hafði verið með allan hugann við innanríkismál, snéri sér
nú með þeim krafti, sem jafnan einkennir hann, að því að
kynna sér utanríkismálin og þá einkum hvernig Bretland vseri
undir það búið, ef til stríðs lcæmi við erlenda þjóð. Til ófriðar
kom ekki að þessu sinni, en þetta Marokkó-mál varð til þess,
að Churchill ATar gerður að flotamálaráðherra.
Frá því í október 1911, að Churchill varð flotamálaráðherra,
og fram í ágúst 1914, að stríðið hófst milli Breta og Þjóðverja,
gerði hann alt, sem í hans valdi stóð, til að auka og bæta brezka
flotann. Og honum veittist eins létt.að verja hina breyttu af'
stöðu sína í flotamálunum eins og afturhvarf sitt í flokkabar-
áttunni áður. Hann, sem hafði barist gegn auknum framlögu111
til flotans, taldi nú aldrei nógu miklu fé til hans varið og var
ákveðinn í að gera hann sem allra sterkastan á svo stuttum
tíma sem framast væri unt. Hann hafði í þessu starfi nana
samvinnu við fyrverandi yfirmann flotáns, Fisher, og að einka'
ritara í flotamálaráðuneytinu valdi hann David Beatty, sem síð-
ar varð frægur af framgöngu sinni í sjóorustunni miklu við
Jótlandsstrendur. Þegar Churchill hafði tíma til frá störfum
sínum í flotamálaráðuneytinu í Whitehall fór hann um borð
í hersltipin, kafbátana eða sjóflugvélarnar, eða þá með snekkju
flotamálaráðuneytisins, Enchantress, til þess að sjá alt með
eigin augum og kynnast sem bezt ásigkomulagi sjóhersins. Það
er haft eftir Asquith forsætisráðherra, að Churchill hafi verið
mjög herskár á fundum ráðuneytisins síðustu vikuna í .i1^1
1914 og krafist þess að fá að láta flotann vera tilbúinn til a^'
lögu á hvaða augnabliki sem væri. Laugardaginn 1. ágúst
hafði hann skipað hverri flotadeildinni um sig á sínar ákveðnu