Eimreiðin - 01.07.1940, Qupperneq 76
276
Á BIÐILSBUXUM
eimreiðin
ég hef verið að aðstoða hana og kálfinn. Hann fæddist rétt
þegar ég var búin að færa ykkur Kaju kaffið. Og mikið er
hann fallegur. Alveg hreint eins og hann Bauli heilinn faðir
hans, nema þetta er kvíga.“
Brandur gleymdi Kaju alveg, af áhuga fyrir nýfædda kálf-
inum.
„Ertu að hugsa um að setja hann á? Hún Rauðka þín er nú
bærileg til undaneldis, þetta er svoddan gæðakyn, sem a®
henni stendur."
„Ja, það má nú segja,“ sagði Áslaug hreykin. „Og þá var
Bauli heilinn nú ekki af verri endanum valinn, kominn af
þessu þekta mjólkurkúakyni. Nú, en hvað ætlaðirðu annars
að tala um við mig, Brandur minn?“
Brandur var dálítið kindarlegur og ibvgginn á svipinn, svo
rétti hann úr sér og sagði virðulega:
„Ég ætlaði að stinga upp á þvi, að við slægjum saman reit-
unum og giftum okkur í vor.“
Hana nú! Þá var það sagt, og Áslaug sagði með hægðinni-
„O-já, það væri nú ekki svo leiðinlegt. En er þér nú alvara,
Brandur minn?“
„Alvara! Hvort mér er alvara!“ hrópaði Brandur og áræddi
í annað sinn á þeim drottins degi að taka utan um kvenmann-
„Ég vissi það altaf, að þú mundir koma,“ sagði Áslaug. Sv°
leit hún eins og óvart niður á við og sagði eins og í hugsunar-
leysi:
„Ósköp eru buxurnar þínar annars krympaðar, Brandui
minn!“
Verðlaunasamkepnin.
Verðlaunasamkepni Eimreiðarinnar 1940, sem stofnað var
til í síðasta hefti, er nú í fullum gangi. Allmargar smásðgu1
og nokkrar ritgerðir hafa þegar borist frá þátttakendum-
Frestur til að senda efni hefur verið framlengdur til 20.
ber næstk., og verður alt efni til samkepninnar að vera kom
dómnefnd í hendur þann dag. Úrslit verða birt í næsta heft
(þ. e. 4. hefti 1940).