Eimreiðin - 01.07.1940, Blaðsíða 96
296
RADDIR
eimreiðin
get ég ekki fallist á. Að vísu eru sum rökin fyrir því, að lífið hér á jörð
sé upprunalega fram komið af einskærri tilviljun, tiltölulega uý af nálinni
hjá höfundi tilgátunnar. En sjálf tilviljunar-kenningin er áður fram komin
í ýmsum myndum. Og hver verður svo útkoman af þessari tilgátu? Mér
finst að eftir sem áður verði að gera ráð fyrir einhverjum reiknimeistara
að baki þessari tilviljunarkendu niðurröðun lífrænnar kristalsfrum-
eindar, sem aðeins á að hafa orðið rétt gerð einu sinni á þeim 1500 miljón-
um ára, sem liðin eru síðan höfin voru sköpuð, ef ég skil greinarhöfund
rétt. Ég hafði sem sagt mjög gaman af að lesa greinina, en tilgátan full-
nægir mér ckki. Og eftir þvi sem ég fæ bezt skilið, er hún ekki þess
megnug að útrýma kenningunni um heimssmiðinn eða skaparann, sem
öll hin æðri trúarbrögð gera ráð fyrir. H. S.
Úr bréfi frá dr. Richard Beck.
Dr. Richard Beck, forscti Þjóðræknisfélags Islendinga í Vesturheimi,
ræðir um það i bréfi til ritstjóra Eimreiðarinnar, dags. 18. júlí þ. á., live
gleðilegur sé hinn mikli áhugi fyrir samstarfinu við ísland, sem hann
hafi víða orðið var við vestra á ferðum sínum i þágu Þjóðræknisfélags-
ins. Bréf dr. Becks hefur verið allmildu lengur á leiðinni en venja er til
um bréf frá Bandarikjunum á friðartímum. Það er látið i póst í Lake
George í Minnesota 19. júlí, en kemur liingað 8. september og hefur þvi
verið hálfa áttundu viku á leiðinni. Þegar bréfið er ritað er dr. Beck
nýkominn úr fyrirlestrarferð frá Nortli Dakota, þar sem liann flutti erindi
um islenzk efni, bæði á Garðar og Mountain, að tilhlutan þjóðræknis-
deildarinnar þar. Hann er fullur áhuga fyrir starfi sinu i þágu Þjóð-
ræknisfélagsins og heitir á alla íslendinga, austan hafs og vestan, n®
treysta sem bezt frændsemis- og vináttuböndin. Hann segir á einum stað
í bréfinu: „Núna á dögunum, er ég var að vanda að liugsa um, hversu
margar stoðir gamalla kenninga og skoðana bogna nú og brotna í timans
stormi, kom mér í hug þessi visa, og læt hana fljóta hér með:
„Þó að ótal bresti bönd,
bogni stoðir trúar,
vináttunnar hlýju-hönd
höfin dýpstu hrúar.“
Vér vonum að höf. misvirði eliki þó að vísan fái að fljóta með einnit?
hér i „Röddum", svo scm tákn og einkenni þess nytsama starfs, sem
hann nú stjórnar vestra: að brúa höfin milli Austur- og Vestur-fslendinga
með gagnkvæmri vináttu og trausti, hvað sem annars á kann að ganga 1
heiminum, nú og á næstu tímum.
íbúar Bandarikjanna.
Einn þriðji hluti ibúa Bandaríkja Norður-Ameríku eru útlendingar,
þ. e. a. s. fólk, sem fætt er utan Bandarikjanna eða eru synir og dætur
foreldra fæddra erlendis.