Eimreiðin - 01.10.1945, Qupperneq 19
EIMREIÐIN
V1 +) ÞJÓÐVEGINN
243
sem afsanni þörfina á djarfmannlegri og drengilegri
ákvörðun okkar sjálfra í þessu vandamáli. Alþingi mun
fyrir nálega ári hafa samþykkt, að ieita skuli eftir því,
að ísland verði tekið í tölu sameinuðu þjóðanna. Það er vita-
skuld hláleg fjarstæða að hugsa sér, að íslenzka þjóðin geti
nokkurn tíma orðið árásarþjóð. Hún er og verður í varnar-
aðstöðu, vill hafa frið til að lifa áfram. En með samþykkt
þessari hefur alþingi gefið í skyn, að um raunverulegt hlut-
leysi íslendinga geti ekki verið að ræða í ófriði. Enn sem
komið er veit enginn hversu fer um hið nýja þjóðahandalag
og öryggisráð þess. Hitt vita aftur á móti allir fslendingar,
að land þeirra liggur innan þess svæðis, sem um langt skeið
hefur verið umráðasvæði Breta í ófriði og nú einnig Banda-
ríkjanna í Norður-Ameríku. f orðsendingu forseta Banda-
ríkjanna, er þau tóku að sér hervernd fslands 7. júlí 1941,
segir, að hervernd þeirra hér sé gerð með þeim skilniugi, að
strax og núverandi hættuástandi í milliríkjaviðskiptum sé
lokið, skuli allur lierafli og sjóher hverfa á brott héðan.
Ekkert hefur enn komið fram opinberlega um, að ekki verði
staðið við þessi heit.
Nú er nýkomin tillaga til þingsályktunar í sameinuðu
alþingi, frá Gísla alþingismanni Sveinssyni, þar sem lagt er
til „að fela ríkisstjórninni að leita samkomulags við hlutað-
eigandi ríki mn meðferð flugvalla og annarra mannvirkja,
sem lierstjórnir Breta og Bandaríkjanna hafa látið gera á
Islandi undangengin styrjaldarár og eigi hefur verið ráð-
stafað.“ f greinargerð með tillögunni bendir flutningsmaður
á það tvennt, að ekki tjói að láta þessi mál reka á reiða mn
óvissan tíma, heldur beri að semja um þau þannig, sem „bezt
má að haldi koma sjálfstæði og sönnu öryggi hins íslenzka
lýðveldis.“ Mim sennilega mega vænta upplýsinga í stað orð-
róms við umræður á alþingi um þessa tillögu. Öll þessi mál
varða alþjóð, enda er frelsi hennar undir því komið, að hún
sé á verði og standi saman um raunsæja lausn til öryggis því
sjálfstæði, sem miði til fullveldis í raun og sannleika, en sé
ekki aðeins nafnið tómt.