Eimreiðin - 01.10.1945, Page 45
KJMREIÐIN
DRENGUR GÓÐUR
269
lætur hann liafa kvikfé, svo að þau geti sett þar saman laglegt
bú í vor. Ég veit, að jörðin losnar. —
Höfðinglega boðið, sagði fóstra mín, og var ekki að lieyra
neinn háðshreim í málrómnum, — en aðeins sá galli á, að engin
beiðarleg stúlka getur gengið þannig mann frá manni. Það er
mansal. Og ég held nú, þrátt fyrir allt, að Þóra auminginn sé
enn þá heiðarleg stúlka. En ég held líka, — nei, ég er viss um,
að við stefnum sál hennar í voða með því að fara að neyða liana
til þess að giftast Sölva. Það er satt, sem þú sagðir, Hákon minn,
að liann er duglegur og ekki sóðalegur, en, ef satt skal segja, þá
er liann bæði heimskur og fjarska leiðinlegur. —
Ekki finnst mér það nú, sagði fóstri minn. —
En það finnst öllum stúlkum, svaraði fóstra mín; — nei,
þetta ráð er alveg á móti mínu skapi; það er aðeins að bæta
glæpi við glæp! —
En livað á þá að gera? sagði fóstri minn; — nú kemur til
þinna ráða, kona. —
Já, sagði fóstra mín. — Svo þagnaði liún augnablik. — Ég
veit ráðið, sennilega eina ráðið út úr þessu kviksyndi. Annar-
hvor ykkar verður að meðganga barnið, — auðvitað með sam-
þvkki stúlkunnar.--------
Það varð nokkuð löng þögn. Mig dauðlangaði til að snúa mér við
í rúminu og sjá framan í þau, — en ég þorði ekki að bæra á
mér, varla að anda. Þótt ég væri aðeins tæpra tólf ára gamall,
var ég nokkuð þroskaður eftir aldri og skildi vel alvöru þessarar
stundar.
Loks var þögnin rofin.
Hákon fóstri minn liló. En það var uppgerðarhlátur, — þó
fremur kuldalegur.
Hvað segir þú, Böðvar? sagði hann, — þér stendur þetta næst;
það er ekki einungis stúlkan, sem þú herð fyrir brjósti, heldur
líka þessi nágranni þinn og kunningi, — Oddur. —
Þið vitið nú hæði dálítið um mínar heimilisástæður, sagði
Böðvar og var nú fremur aumingjalegur; — ég held bara að mitt
heimili stæðist ekki slíkt. Konan, hún Þórdís, já, þú þekkir
hana, Valgerður! Þetta er auðvitað bezta kona, — en ég lield —
nei, ég veit, að hún mundi fara, — já liún mundi aldrei sætta
sig við þetta. Nei, það getur ekki komið til mála, livað sem