Tímarit lögfræðinga - 01.07.1953, Side 41
Skilorðsbundnir refsidómar.
167
hvor't dómi skuli fullnægt eða frestun haldast með sömu
eða eftir atvikum breyttum skilyrðum.
Fremji dómfelldi nýtt brot á reynslutímanum, en réttar-
rannsókn út af því hefst ekki fyrr en að frestinum liðnum,
verður ekki um það að ræða að fullnægja refsingunni sam-
kvæmt eldri dómnum, heldur skulu skilorðserofin tekin til
greina til þyngingar refsingunni fyrir nýja brotið.
Af því, sem nú hefir verið sagt, er ljóst, að ákvæði
hegningarlaganna um skilorðsbundna dóma eru mjög í
sama anda og þau ákvæði, sem þau leystu af hólmi, en þó
nokkru víðtækari og ríkari af möguleikum dómstólunum
til handa. Valfrelsið um reynslutímann hefir reynzt mjög
vel. Oft virðist ástæðulaust að einstrengja reynslutímann
við 5 ár og koma óþarflega hart niður, einkum þó varðandi
sviptingu kosningarréttar. Þá er heimildin til að binda
frestunina því skilyrði, að dómfelldi sé á reynslutímanum
háður eftirliti stofnunar eða einstaklings. Þetta er, eins
og að framan er sagt, ekki notað hér neitt að ráði, ein-
faldlega af þeirri ástæðu, að hér eru engin stofnun eða
einstaklingar, sem þetta hlutverk er ætlað, og verður þetta
ákvæði laganna eigi virkt eða a. m. k. ekki að neinu ráði,
fyr en slíkri stofnun verður komið á fót. Að þessu leyti er
framkvæmd þessara mála hér á landi næsta frábrugðin því,
sem annarsstaðar er, a. m. k. á Norðurlöndum og í Eng-
landi. Þar er eftirlitið með hinum brotlega og aðstoðin við
hann eitt meginatriðið í þessum efnum öllum og hefir
lengi verið. Þar starfar fjöldi sérmenntaðs fólks að þessum
efnum og eru því veittir ýmsir möguleikar til að verða
brotamönnunum að liði í lífsbaráttunni. Allt kostar þetta
mikið fé og er hér á landi í þeim efnum í mörg horn að
líta. Er þá mjög athugandi, hvernig þessum efnum megi
koma fyrir á sem ódýrastan og hagkvæmastan hátt hér í
fámenninu, svo sem hvort sameina mætti þetta starf ein-
hverju öðru félagslegu starfi.
Hvorki í lögunum frá 1907 né núgildandi hegningarlög-
um er gerður greinarmunur á brotamönnum eftir aldri,
og hefir því frá upphafi verið heimilt að sldlorðsbinda