Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1961, Side 6

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1961, Side 6
hinir eldri skólar, fj'rst og fremst latínuskóli og opnaði nemendum braut að háskólanum í Kaupmannaliöfn. Þar þurftu nemendur þó að taka inntökupróf (examen artium) og annað lærdómspróf, enda var það svo um latínuskóla í danska rikinu. En háskólaráðið taldi lær- dómi íslenzkra námsmanna svo ábótavant, að minni kröf- ur j^rði yfirleitt að gera til þeirra en annarra, ef þeir ættu almennt að standast inntökupróf. Sama var og um nám prestsefnanna, að því þótti mjög ábótavant. Mönn- um var þvi ljóst, að hér var úrbóta þörf. M. a. rituðu þeir Baldvin Einarsson og Tómas Sæmundsson um þessi mál. Lagði Tómas til að latinuskólanámið og guðfræði námið yrði aðskilið að nokkur þannig, að við skólann yrði aukið sérstakri deild til undirbúnings prestsefna. Til- lögur Baldvins voru víðtækari. Hann vildi ekki láta við það sitja að endurbæta latínuskólann og auka guðfræði- námið, heldur vildi hann koma á fót liér á landi fram- haldsnámi i heimspeki, náttúrufræði, læknisfræði, hag- fræði og verzlunarfræði. Lögfræði nefnir hann hins vegar ekki. Hér er þvi hreyft í fyrsta sinni, að komið sé á fót, hér á landi, almennri fræðslustofnun til fram- haldsnáms. Skólastjórnaryfirvöldin virðast og hafa gert sér ljóst, að ástandið væri eigi viðunandi. Eftir allmikið þóf og bréfaskriftir milli skólastjórnarinnar og stipts- yfirvaldanna varð lausn málanna sú um sinn, að latinu- skólinn var fluttur til Reykjavikur 1846 og settur undir stjórn Sveinbjarnar Egilssonar. Jafnframt var stofnað til prestaskóla með Kbr. 21. maí 1847 og tók hann til starfa sama ár. Hann var mjög mótaður af tillögum Helga biskups Thordersen. Hugmvnd Baldvins Einarssonar tók Jón Sigurðsson síðar upp, aukna og endurbætta, er hann kom fram með tillögu sina um þjóðskóla i II. árgangi Nýrra félagsrita. Og á hinu fyrsta endurreista Alþingi 1845 kom fram bænarskrá um þjóðskóla í sama anda og ritgerð Jóns í Nýjum félagsritum. Var þar m. a. óskað eftir, að hafin 52 Tímaril löc/fræðinga

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.