Tímarit lögfræðinga - 01.06.1961, Blaðsíða 41
geir Ásgeirsson, Gylfi Þ. Gíslason menntamálaráð-
herra, Geir Hallgrímsson borgarstjóri i Reykjavík, og
dr. Richard Beck, forseti Þjóðræknisfélags Islendinga í
Vesturheimi. Þá var flutt: „Þú eldur, sem brennur við
alveldisstól“ úr Háskólaljóðum Þorsteins Gislasonar, við
lag eftir dr. Pál Isólfsson. Þá fluttu kveðjur: dr. Sigurð-
ur Sigurðsson landlæknir af hálfu Yísindafélags íslend-
inga, Sveinn Einai'sson, vei’kfi'æðingur af hálfu Banda-
lags Háskólamanna, Matthías Jóhannessen ritstjóri af
hálfu Stúdentafélags Reykjavíkur og Höi'ður Sigurgests-
son stud. oecon. af hálfu stúdentai'áðs. Næst var flutt
hátiðarljóð eftir Davið Stefánsson við lag eftir dr. Pál
Isólfsson. Fullti’úar ei’lendra háskóla fluttu því næst kveðj-
ur, og þessum þætti hátíðarinnar lauk með því, að þjóð-
söngurinn var sunginn.
Daginn eftir, hinn 7. október, var háskólahátíð, er hófst
með því, að dr. Sigui’ður Nordal flutti ei’indi, þá söng
Guðmundur Jónsson þrjú lög með undirleik Fr. AVeiss-
happel. Að því loknu var lýst kjöri 24 heiðursdoktora.
Heiðui’sdoktorar i lögfi'æði voru kjörnir 6. Þeir eru:
Alexander Jóhannesson prófessor emer.ogfyrrum háskóla-
rektor, Bjarni Benediktsson dóirxsmálaráðherra, Oscar Al-
fred Borum prófessor juris við Kaupmannahafnarháskóla,
Nils Herlitz prófessor jur. við Uppsalaháskóla, Knut Inge-
brigt Robberstad prófessor jur. við Oslóarháskóla og'
Tauno Tii’kkonen prófessor jur. við háskólann i Helsinki.
Kjöri heiðursdoktoranna fylgdi svofelld gi’einargerð:
Alexander Jóhannesson er fæddur 1888. Hann hóf kennslu
við Háskóla íslands árið 1915. Gegndi hann kennslustörfum
við háskólann, lengstum sem prófessor, í 43 ár.
Alexander Jóhannesson er afkastamikill rithöfundur og hefir
unnið stórvirki á fræðisviði sínu.
Hann var fyrst kjörinn rektor Háskóla íslands árið 1933
og hefur gegnt rektorsembætti í 12 ár samtals eða miklu leng-
ur en nokkur maður annar. Hann var forgöngumaður að
mörgum mannvirkjum háskólans, formaður í byggingarnefnd-
Tímcirit lögfrœðinga
87