Tímarit lögfræðinga - 01.06.1961, Blaðsíða 59
IQlt^eÁ ejtir Oíaj <=Hc
aruóóon:
Félagsmálalöggjöf íslendinga
á 12. öld
Á þingi norrænna lagamanna, sem haldið var hér á landi
sumarið 1960, flutti dr. Ólafur Lárusson erindi það, sem hér
birtist. Erindið var samið og flutt á dönsku, en þýtt að tilhlut-
an Morgunblaðsins og birt þar 14. ágúst 1960. Sú þýðing er
endurprentuð hér. Hér er um gagnmerkt erindi að ræða, eins
og vænta mátti, og þykir því rétt að birta það í þessu riti, enda
eru þeir fáir, sem halda dagblöðum saman, Erindið mun vera
hið síðasta, sem dr. Ólafur lét frá sér fara um lögfræðileg efni
á opinberum vettvangi.
Þeir þættir úr félagsmálalöggjöf Islands, sem ég mun
fjalla um að þessu sinni, eru nokkur ákvæði í Grágás,
sem %’arða að nokkru lej'ti fátækraframfærslu og að öðru
leyti vissar ráðstafanir, sem áttu að koma í veg fyrir, að
flækingar yrðu öðrum til byrði. Frá örófi alda hefur
mannkynið jafnan orðið að ráða fram úr því vandamáli,
hvernig fara ætti með þá samfélagsborgara, sem af ein-
hverjum ástæðum gátu ekki framflevtt sér sjálfir. Þetta
vandamál hefur á ýmsum timum verið leyst á ólíkan
hátt. Sá siður tíðkaðist meðal frumstæðra þjóða, að út-
skúfa hinum hágstöddu, en nú er hin mannúðlega um-
önúun þjóðfélagsins komin til sögunnar. Þau ákvæði i
Grágás, sem ég mun ræða um, sýna, hvernig íslending-
ar leituðust við að leysa þetta vandamál fvrir sjö til átta
hundruð árum.
Ég skal taka fram, að nafnið Grágás er samheiti á
handritum, lagalegs efnis, sem varðveitzt hafa frá dög-
um hins forna þjóðveldis.
10ö
Tímarit lögfræðinga