Tímarit lögfræðinga - 01.06.1961, Blaðsíða 77
inni, sem fékk fyrsta mál dómstólsins til meðferðar. Mál-
ið fjallaði um það, að írskur maður, Lawless að nafni,
hafði verið handtekinn í heimalandi sinu í júlimánuði
1957. Var liann grunaður um að hafa verið viðriðinn
liermdarverk irska lýðveldishersins (IRA), en það er her-
væddur félagsskapur, sem hafði verið lýstur ólöglegur
i Irlandi. Sat Lawless í fangahúðum um fimm mánaða
skeið, án þess að vera leiddur fyrir dómara né mál höfðað
á hendur lionum. Handtakan og varðhaldið var byggt á
heimild í irskum lögum, sem leyfa slíkar aðgerðir á
Iiættutímum. Lawless lagði mál sitt fyrir Mannréttinda-
nefndina, taldi þetta brot á mannréttindasáttmálanum
og krafðist skaðabóta úr hendi írsku ríkisstjórnarinnar.
Nefndin tók málið fyrir, og lvktaði því svo, að meiri-
hlutinn — nauinur þó — taldi brot elcki hafa verið frain-
ið. Skaut hún síðan málinu til dómstólsins. írska stjórn-
in hafði uppi ýmsar varnir i máliun. Véfengdi hún fyrst
lögsögu dómstólsins á þeim grundvelli, að nefndin hefði
tafið óhæfilega lengi að senda skýrslu sína til ráðherra-
nefndarinnar og að laka ákvörðun um að leggja málið
fyrir dómstólinn, Síðar féll stjórnin frá þessum mót-
mælum, en hélt fast við önnur, sem risin voru af máls-
meðferð nefndarinnar og hvaða réttarfarsmeðferð til-
tekin atriði ættu að sæta fvrir dómslólnum (preliminary
objeetions). Var dómur kveðinn upp um þetta, að undan-
gengnum málflutningi, þann 14. nóvember 1960. Við
munnlegan málflutning um efni málsins í aprílmánuði
1961 risu einnig upp deilur um réttarfarsatriði, og gekk
sérstakur dómur um það efni. Efnisdómur í málinu var
kveðinn upp þann 1. júlí s.l. írska stjórnin hafði borið
fvrir sig 17. gr. sáttmálans, þar sem m. a. segir, að engin
ákvæði hans skuli skýrð þannig, að þau feli í sér rétt
einstaldings til að framkvæma verknað, sem miðar að
evðileggingu þeirra réttinda og frelsis, sem sáttmálinn
viðurkennir. Dómstóllinn leit svo á, að þetta ákvæði gæti
ekki svipt Lawless þeirri vernd, sem sáttmálinn tryggir
Timarit lögfræðinga
123