Tímarit lögfræðinga - 01.06.1961, Blaðsíða 15
Sleimlór Gunnlaugsson fulltrúi. Lauk prófi vorið 1915.
Þorsteinn Þorsteinsson sýslumaður. Lauk prófi vorið
1914.
Vorið 1961 höfðu alls 815 stúdentar verið skráðir i
lagadeild, 130 voru þá við nám þar, en kandidatsprófi
höfðu lokið 436.
Er háskólinn var stofnaður, voru prófessorar þrir, eins
og áður segir. Með lögum nr. 85, 24/12 1953, var hin-
um fjórða bætt við.
Ilinir þrír fyrstu prófessorar deildarinnar létu af störf-
um sem hér segir: Lárus H. Bjaniason 1920, Einar Arn-
órsson 1932. Hann var þó ráðherra 4/5 1915—4/1 1917
og gegndi ölafur Lárusson störfum hans á meðan, Jón
Kristjánsson dó 1918. Aðrir prófessorar ihafa verið: Ólafur
Lárusson 1919—1955, Magnús Jónsson 1920—1934, Bjarni
Benediktsson 1932—1941, Þórður Eyjólfsson 1934-—1936.
tsleifur Árnason 1936—1948, Gunnar Thoroddsen 1942
—1947. Nú eru prófessarar þessir: Ólafur Jóhannesson
síðan 1947. Ármann Snævarr síðan 1950, Theodór B. Lín-
dal síðan 1954, og Magnús Torfason siðan 1955. Auka-
kennarar hafa verið: t lögfræði: Ólafur Lárusson pró-
fessor (réttarsaga), Theodór B. Líndal (raunhæf verk-
efni), Hans G. Andersen sendiherra (þjóðarréttur), Vil-
hjálmur Jónsson framkv.stj. (almenn lögfræði) og Þór
Vilhjálmsson borgardómari (almenn tögfræði). Kennslu
í þjóðhagsfræði hafa annazt: Sverrir Þorbjarnarson, for-
stjóri; í bókfærslu, Björn E. Árnason, enduskoðandi, Gylfi
Þ. Gíslason, ráðherra, Þorvarður Jón Júliusson og Guð-
laugur Þorvaldsson viðskiptafræðingur; í vélritun Elís Ó.
Guðmundsson, kennari, frú Bagnhildur Ásgeirsdóttir og
Tómas Óskarsson stórkaupmaður.
Samkv. fyrrgreindum lögum nr. 35, 30/7 1909, um
stofnun háskóla, var gefin út auglýsing nr. 59, 4. okt.
1911, um bráðabirgða reglugerð fvrir Háskóla Islands.
Engin ákvæði voru þar þó um kennslutilhögun né próf,
nema doktorspróf. En 27. des. s. á. var gefinn út við-
Timarit löcjfrœðincja
61