Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1961, Page 21

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1961, Page 21
júni 1958 og eru ákvæði hennar um kennslu og próf á þessa leið: „Laga- og viðskiptadeild. 48. gr. 1. Kennslugreinar i lagadeild eru þessar: 1. Almenn lögfræði. 2. Þjóðhagfræði. 3. Bókfærsla. 4. Fjármunaréttur. 5. Sifjaréttur, erfðaréttur og persónuréttur. 6. Stjórnskipunar- og stjórnarfarsréttur. 7. Refsiréttur. 8. Réttarfar. 9. Réttarsaga. 10. Sjóréttur og félagaréttur. 11. Þjóðaréttur og alþjóðlegur einkamálaréttur. 12. Æfingar í úrlausnum raunhæfra verkefna. 13. Vélritun. Embættispróf í lögfræði. 49. gr. Embættisprófinu skal skipt í tvennt, fyrra hluta og síðara hluta. Prófgreinar í fyrra hluta eru þessar: 1. Fjármunaréttur, tvö skrifleg og eitt munnlegt próf. 2. Sifjaréttur, erfðaréttur og persónuréttur, skriflegt og munnlegt próf. 3. Stjórnskipunar- og stjórnarfarsréttur, skriflegt og munnlegt próf. 4. Raunhæft úrlausnarefni, þar sem reynir á atriði úr 1.—3. prófgrein, fvrra hluta, skriflegt próf. Áður en stúdent segir sig til fyrra hluta prófsins, skal hann leggja fram skilriki fyrir því, að hann hafi staðizt próf i almennri lögfræði, þjóðhagfræði og bókfærslu. Til þess að standast próf í almennri lögfræði, þarf stú- dent að sýna slika þekkingu á prófi, að virt verði til Tímarit lögfræðinga 67

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.