Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1972, Síða 13

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1972, Síða 13
Ef litið er á allar þær reglur um örorkumöt í slysa- tryggingu, sem hafa komið fram á Norðurlöndum, gengur þar eins og rauður þráður í gegn, að reynt er að setja fram töflur um örorkumatið. Menn eru ekki sammála um, hvar töflur um örorkumat hafi fyrst verið samdar, en það er mjög líklegt, að þær hafi fyrst verið samdar i Austurríki eða Þýzkalandi á árnnum 1880 til 1890. Er talið, a. m. k. af sumum, að til grundvallar þeim hafi verið lagðar athuganir á því, hvernig verkamönnum, þá fyrst og fremst námamönnum, sem höfðu misst fingur eða limi, gekk að vinna fyrir sér. Upphaflega hafi því töflurnar verið hugsaðar til að mæla þann raunverulega missi á starfsgetu, sem sá slasaði varð fyrir. Hins vegar er enginn vafi á því, að síðar gleymdist þessi upphaflegi tilgangur taflanna, ef hann hefur þá verið raun- verulegur. Matstöflur eru nú undantekningarlaust skoð- aðar sem læknisfræðilegar matstöflur, þ. e. a. s. mat á missi slasaða frá læknisfræðilegu sjónarmiði. Þetta kemur mjög glöggt fram t. d. í örorkumatstöflum brezkum, þar sem mjög er undirstrikað, að örorkumatið sé til að bæta mönnum missinn sem slíkan og þá lífsánægju, sem þeir fara á mis við vegna þessa missis. Hér er raunverulega komið að kjarna málsins: Hvert á að vera markmið örorkumatsins? Á að meta starfsgetu viðkomanda og hæfileika hans til tekjuöflunar fyrir og eftir slysið eða er það fyrst og fremst markmiðið að áætla og leggja til grundvallar læknisfræðilega þekkingu, hvað missir líkamshluta, hæfileika eða annars er mikils virði? Eins og áður sagði er sums staðar sú skoðun ríkjandi, að við örorkumöt vegna slysa eigi alls ekki að taka tillit til vinnugetu, lieldur cingöngu að meta í þeim tilgangi að bæta þann líkamlega eða andlega missi, sem maðurinn hafi orðið fyrir. Þannig er þetta litfært mjög ítarlega hjá Bret- um. Þeir hæta eltki missi annars nýra vegna slyss, ef hitt nýrað er lieilbrigt, á þcirri forsendu, að maður hafi enga hugmynd um, hvort Iiann er með eitt nýra eða tvö, ef Tímarit lönfræðiiu/a 47
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.