Tímarit lögfræðinga - 01.06.1972, Qupperneq 46
málans að þcssa samræmis sé gætt og lilutverk nefndar-
innar að vera á verði í því efni. Gildir það jafnvel þótt
löggjöfin, sem um er að tefla, sé eldri en sáttmálinn,
enda sé ekki um bætt.15) Af þessum sjónarmiðum er
talið leiða að ástand, sem var áður en riki gerðist að-
ili, fellur undir ákvæði sáttmálans ef og að svo miklu
leyti sem það heldur áfram eftir að aðildin varð virk.16)
Nefndin tekur mál því aðeins til meðferðar að full-
nægt sé ákvæðum 26. gr. Hún hljóðar þannig:
„Nefndin getur því aðeins tekið mál til meðferðar, að
leitað hafi verið til hlítar leiðréttingar i heimalandinu,
samkvæmt almennt viðuiikenndum reglum þjóðaréttar
og innan sex mánaða frá þvi, að fullnaðarákvörðun var
þar tekin.“
Fjölda mála hefur verið vísað frá af því, að kæru er
beint gegn riki, sem ekki er aðili að sáttmálanum eða
ríki, sem að vísu hefur undirritað liann, en ekki full-
gilt.17) Einstaklingar eru ekki aðilar að sáttmálanum
og kærum á hendur þeim er vísað frá.18)
Þótt kæranda hafi verið ókunnugt um að opin leið væri
til frekari málareksturs lieima fyrir, skapar það hon-
um engan sérstakan rétt.10) Sönnunarhyrðin hvílir á
kæranda.20) Sú dómstólaleið sem gerð er að skilyrði til
þess að nefndin taki mál til efnismeðferðar, verður að vera
raunhæf. Sérstök atvik eða ástand geta þvi leyst kær-
anda undan þessari kvöð t.d. ef dómstólar eru sviptir
sjálfstæði sínu.21)
Sex mánaða reglan telst frá þeim degi, er endanleg-
ur dómur eða úrskurður var kveðinn upp, og er sjaldn-
ast vafi á um það. Þó hafa risið nokkur vafaatriði í
einstaka falli, einkum í sambandi við varðhaldsúrskurði
og framlenging á þeim. Nægjanlegt er að aðalritara
Evrópuráðsins hafi borist kæran innan sex mánaða frests-
ins. Hún þarf því ekki að vera komin til nefndarinn-
ar innan hans.
80
Tímarit lögfræðinga