Tímarit lögfræðinga - 01.06.1972, Blaðsíða 53
sem ráðherranefndin tekur samkvæmt ofangreindum tölu-
liðum, sé bindandi fyrir þá.“
Ljóst er af því, sem hér hefur verið rakið, að hér fa
málin stjórnmálalega lausn, og er að þvi leyti ekkert
nýmæli í alþjóðaviðskiptum.
En önnur leið er og fær. I IV. kafla sáttmálans eru
ákvæði um Mannréttindadómstól Evrópu. Er þar um
algert nýmæli að ræða, eins og áður er vikið að, því
hér kemur vernd dómsvaldsins til. Um hlutverk dómsins
segir í 45. gr.:
„Lögsaga dómstólsins tekur til allra mála varðandi
skýringu og framkvæmd samnings þessa, sem samn-
ingsaðilar eða nefndin leggja fvrir liann samkvæmt 48. gr.“
Og í 48. gr. segir:
„Þcir, er nú skal grcina, gcta lagt mál fyrir dómstól-
inn, enda sé samningsaðili sá eða þeir, sem lilut eiga
að máli, skyldir að hlíta lögsiigu dómstólsins eða ann-
ars kostar samþykki það: -— a. nefndin; — b. samnings-
aðili, er þegn hans er talinn órétti beittur; — c. samn-
ingsaðili, sá sem vísaði málinu til nefndarinnar; — d.
samningsaðili, sem kvörtun hefur verið beint gegn.“
Hér sést að það eru rikin, (samingsaðilar), sem eru að-
ilar máls, jafnvel þótt einstaklingur hafi verið aðili á með-
an málið var fyrir nefndinni. Einstaklingarnir mega þó
vera viðstaddir, jafnvel með sérfræðinga sína, en það eru
umboðsmenn nefndarinnar, sem koma formlega fram fyrir
dóminum. Þeir eru venjulega þrír og er einn aðalframsögu-
maður. Hlutverk þeirra er að reifa málið hlutlaust, bæði
varðandi staðreyndir og lög og rökstyðja síðan álit sitt.
Umljoðsmenn ríkjanna reifa hins vegar málið frá sjónar-
miði umbjóðanda síns.
Hér verður ekki nánar rætt um Mannréttindadómstól-
inn, en aðeins bent á, að samkv. 52. gr. er ákvörðun dóms-
ins lokadómsorð. Um framkvæmd fer samkv. 54. gr.
Þar segir: „Dómur dómstóls skal afhentur ráðherra-
nefndinni, sem hefur cftirlit með framkvæmd hans.“
Tímarit lögfræðinga
87