Tímarit lögfræðinga - 01.07.1973, Blaðsíða 10
3. Lagastarf Evrópuráðsins hefur einkum beinzt að tveimur sviðum:
alþjóðlegum einkamálaréttarreglum og verzlunarréttarreglum ann-
ars vegar og afbrotavandmálum og sakfræði hins vegar.
4. Þjóðaréttur, einkamálaréttur og verzlunarréttur.
Ráðherranefnd Evrópuráðsins samþykkti 1963 að stofna Lagasam-
starfsnefnd Evrópu (European Committee on Legal Co-operation,
CCJ). Var ástæðan sú, að ljóslega var þörf á að hafa við að styðjast
vel skipulagða og virka starfsáætlun um lögfræðileg málefni. 1
ályktun ráðherranefndarinnar nr. (63)29 um „Lagaáætlun Evrópu-
ráðsins" er hlutverki CCJ lýst með þessum orðum:
„(a) að framkvæma Lagaáætlun Evrópuráðsins, samræma störf
eftir henni og hafa umsjón með þeim,
(b) að bæta við áætlunina eða fella úr henni, einkum með hlið-
sjón af ályktunum ráðgjafarþingsins og tillögum ríkisstjórna
eða alþjóðastofnana,
(c) að setja á fót að fengnu samþykki ráðherranefndarinnar und-
irnefndir og sérfræðinganefndir í því skyni að framkvæma
Lagaáætlunina, — og að setja nefndunum erindisbréf,
(d) að kanna, eftir því sem við á og með hliðsjón af álitsgerðum
ríkisstjórna eða ráðgjafarþingsins, tillögur eða niðurstöður,
sem fram koma í sérfræðinganefndum, áður en þær eru lagð-
ar fyrir ráðherranefndina,
(e) að fylgjast með starfsemi í öðrum stofnunum eða hjá öðrum
aðilum í því skyni að koma á virkri samræmingu á störfum
og aukinni samvinnu um sameiginleg hagsmunamál,
Dr. Heribert Golsong forstjóri lagadeildar
Evrópuráðsins er fæddur 1927 í Oberhausen í
Vestur-Þýzkalandi. Hann nam lögfræði í Köln,
Wurtzburg og Bonn, en réðst í þjónustu
Evrópuráðsins 1954. Hann varð aðstoðarritari
mannréttindadómstóls Evrópu 1960 og ritari
dómsins þrem árum síðar. Forstjóri lagadeild-
ar Evrópuráðsins varð hann 1965, en gegndi
jafnframt dómritarastarfinu til 1968. — Grein
þá, sem hér birtist, samdi dr. Golsong fyrir
Tímarit lögfræðinga. Segir hann þar frá starf-
semi Evrópuráðsins að lögfræðilegum mál-
efnum, öðrum en mannréttindamálum, og er m.
a. vikið að þætti Islands í störfum ráðsins.
8