Tímarit lögfræðinga - 01.07.1973, Blaðsíða 11
(f) að koma á viðræðum, ef við á, milli ríkisstjórna aðildarríkja
um lagamálefni, þar sem hagsmunir eru sameiginlegir, en að
málum er unnið utan Evrópuráðsins,
(g) að fylgjast með undirritunum og fullgildingum samninga,
sem varða starfssvið ráðherranefndarinnar, og öðrum al-
þjóðasamningum, sem kunna að varða sameiginlega hags-
muni aðildarríkja Evrópuráðsins,
(h) að vinna önnur þau störf, sem ráðherranefndin kann að fela
því.“
5. CCJ hefur stofnað allmargar sérfræðinganefndir til að vinna að
verkefnum þeim, sem talin voru. Hafa nefndir þessar kannað margs
konar mál, ýmist í því skyni að semja tillögur að alþjóðasamning-
um eða setja fram leiðbeiningarsjónarmið fyrir ráðherranefndina.
Hefur hún nýtt þessar leiðbeiningar á þann hátt að gera ályktanir,
sem beint er til ríkisstjórna aðildarríkjanna. Nokkrir Evrópusamn-
ingar á sviði alþjóðlegs einkamálaréttar og verzlunarréttar hafa
verið undirbúnir af þessum nefndum, en síðar lagðir fyrir aðildar-
ríkin, fullgiltir og látnir koma til framkvæmda.
6. Hér skulu nefndir samningar, sem af íslands hálfu hafa verið undir-
ritaðir og fullgiltir. Sýna þeir, að Evrópuráðið hefur með marg-
víslegum hætti unnið að samræmingu laga í álfunni.
(a) Evrópusamningur um upplýsingar um erlenda löggjöf, sbr.
auglýsingu nr. 16/1969.
Með þessum samningi er komið á kerfi, sem dómstóll í ríki,
er hef ur fullgilt samninginn, getur notað til að afla upplýsinga
um lagareglur, þ. á m. réttarfarsreglur, í öðru ríki, sem full-
gilt hefur með sama hætti. Má nota þetta kerfi á sviði einka-
málaréttar og verzlunarréttar. 1 samþykktinni eru ákvæði um
þá aðila, sem slíkra upplýsinga geta leitað, um efni tilmæla
um upplýsingar, aðferðir við að koma þeim á framfæri, þýð-
ingu svara, fresti til að svara, undanþágu frá svarskyldu o.fl.
(b) Evrópusamningur um formsatriði við umsóknir um einka-
leyfi, sbr. auglýsingu nr. 5/1966.
í þessum samningi koma fram skilyrði fyrir því, að umsókn
verði lögð fram, reglur um lýsingu á uppgötvunum og frá-
gang skýringarteikninga. 1 samningsviðauka eru eyðublaða-
form fyrir einkaleyfaumsóknir.
(c) Evrópusamningur um vernd dýra í millilandaflutningum, sbr.
auglýsingu nr. 8/1969.
1 þessum samningi eru reglur, sem miða að því að koma í veg
9