Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1975, Side 30

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1975, Side 30
fræðimenn hafa skýrt hugtakið „stjórnvald“ í FL svo, að undir það falli hver sá aðili, er starfar sjálfstætt sem liður í stjórnsýslu ríkis eða sveitarfélaga. Lj óst er, að utan þess hafna: 1 fyrsta lagi þeir opinberir aðilar, sem ekki er ætlað að taka sjálfstæðar ákvarðanir á eigin ábyrgð. — 1 öðru lagi aðilar, er standa utan hins réglulega stjórnkerfis, t. d. fyrirtæki í eigu ríkis eða sveitarfélaga og opinberir sjóðir eða stofn- anir, sem starfa að meira eða minna leyti sjálfstætt. Þetta er þó ekki einhlítt, því að FL ná, eins og skýrt var tekið fram í greinargerð, til nokkun-a sjálfstæðra stofnana, þ. á m. svonefndra allmánna försak- ringskassor, er hafa með höndum áþekk verkefni og Tryggingastofnun ríkisins og sjúkrasamlög hér á landi. Skilgreiningu á hugtakinu „málsmeðferð", „handlággning av áren- de“, er ekki heldur að finna í FL. Fyrst og fremst mun þó átt við þær gerðir stjórnvalds, er lúta að ákvörðun í einstöku máli, — aftur á móti ekki þær, er skoða má sem hrein framkvæmdar- eða þjónustuverk. Það eitt að stjórna umferð á gatnamótum getur, svo að dæmi sé tekið, aug- ljóslega ekki talist málsmeðferð af neinu tagi. Öðru máli gegnir hins vegar, er lögregluþjónn lætur til skarar skríða gegn ökumanni, sem gerst hefur brotlegur. Það gæti hæglega talist fyrsti liður í meðferð máls. Hér sem annars staðar er þó mjótt mundangshófið. FL gilda að jafnaði á hvaða stigi málsmeðferðar sem er, — allt frá því að stjórnvald byrjar afskipti af máli og þar til ákvörðun er tekin, hún kunngerð hlutaðeigandi og hrundið í framkvæmd, sé þess þá þörf. Yfirleitt er ljóst, hvenær afskipti stjórnvalds af máli hefjast, — t. d. þegar umsókn eða kæra berst. Þó getur vafi leikið á þessu, þegar stjórnvald lætur mál til sín taka af sjálfsdáðum. Úr því álitaefni ætti samt að vera hægt að skera og þá eftir atvikum hverju sinni. 2.1.2. Sérákvæði í öðrum lögum eða reglugerðum halda gildi sínu eftir gildistöku FL, sbr. 1. gr. 2. mgr. laganna. Áður en FL voru sett, skiptu þau sérákvæði hundruðum, er giltu um málsmeðferð hjá stjórnvöldum. Mörg þessara ákvæða voru felld niður við gildistöku FL. Þau, sem eftir stóðu, hafa smám saman týrit tölunni. Stefnt er að því, að þau sérákvæði ein, er styðjast við gild efnisrök, haldi velli í framtíðinni. 2.1.3. FL ná ekki til allra sænskra stjórnvalda, sbr. 2. gr. laganna. í fyrsta lagi fellur ríkisstjórnin sem heild utan gildissviðs FL, sbr. 2. gr. 1. tl. laganna. öðru máli gegnir hins vegar um einstaka ráð- herra eða ráðuneyti. Lögin gilda því — svo dæmi sé tekið — þegar ráð- 168

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.