Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.12.1975, Page 41

Tímarit lögfræðinga - 01.12.1975, Page 41
2.3.3. Það er réttlætiskrafa einstaklings eða annars óopinbers aðila, að hann fái að vita, hvaða rök búi að baki stjórnvaldsákvörðun, sem snertir réttindi hans eða skyldur. Með því móti einu getur hlutaðeig- andi gengið úr skugga um, hvort ákvörðunin sé í senn lögmæt og rétt- mæt eða hvort ástæða sé til að kæra hana, — og þá gert sér grein fyrir, hvernig haga beri málflutningi fyrir æðri stjórnsýsluhafa. Rök- stuðningur tryggir og, að ákvörðun sé yfirveguð, — þótt hann geti á hinn bóginn dregið meðferð máls á langinn. Skv. 17. gr. 1. mgr. FL skal stjórnvald að jafnaði rökstyðja þá ákvörðun, er bindur endi á mál, hvort sem hún snýst um efni þess eða form. Þannig á t. d. að færa rök fyrir frávísun máls. Erfitt er að gefa nákvæmar reglur um það, í hverju rökstuðningur skuli fólginn. Þó er ætlast til, að stjórnvald gei'i í stuttu máli grein fyrir þeim sjónarmiðum, er að baki ákvörðun búa, án þess að ítarleg lýsing á málavöxtum eða bollaleggingar um einstök efnisrök aðila fvlgi. Stjórnvald þarf ekki að rökstyðja ákvörðun sína í eftirtöldum til- vikum: Gangi ákvörðun aðila í vil eða sé að öðru leyti óþarfi að færa rök fyrir henni, sbr. 17. gr. 1. tl. Þyki þörf á að sleppa rökstuðningi vegna allsherjar- eða einstaklingshagsmuna, — byggist ákvörðun t. d. á sjónarmiðum, er leynt verða að fara sökum öryggis sænska ríkisins, sbr. 17. gr. 3. tl. Beri ákvörðun svo brátt að, að enginn tími gefist til að rökstyðja hana, sbr. 17. gr. 4. tl. Og loks sé um að ræða ákvörðun á borð við stöðu- eða styrkveitingu, sem erfitt gæti verið að rökstvðja, nema með ærinni fyrirhöfn, sbr. 17. gr. 2. tl. (Sjá til hliðsjónar 2.3.1. að framan.) Fái málsaðili ekki strax vitneskju um þau sjónarmið, er búa að baki stjórnvaldsákvörðun, á stjórnvald að kynna honum þau síðar, sé þess kostur, sbr. 17. gr. 2. mgr. FL. Þannig skal aðili — svo dæmi sé tekið — að jafnaði fá að vita rök fyrir ákvörðun, sem þolir enga bið, — en fyrst eftir að hún hefur verið tekin og e. t. v. framkvæmd. Skilyrði þess er þó, að aðili fari sérstaklega fram á það. 2.3.4. 18. gr. FL fjallar um birtingu stjórnvaldsákvarðana. Skv. 18. gr. 1. mgr. á að birta aðila máls efni þeirrar stjórnvalds- ákvörðunar, er endi bindur á málið. Sérstakur birtingarháttur er ekki lögboðinn, — t. d. er ekkert því til fyrirstöðu, að aðila sé kunngert efni ákvörðunar munnlega. Birting er ekki nauðsynleg, sé hún augljóslega óþörf. Undantekn- ingu þessa ber að skýra þröngt, eins og reyndar önnur samsvarandi ákvæði í FL. Þannig á að birta stjórnvaldsákvörðun, án tillits til þess, 179

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.