Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.06.1988, Page 16

Tímarit lögfræðinga - 01.06.1988, Page 16
hendi fulla greiðslu. Annars vegar sú, að sjóveðréttur fyrnist á einu ári, ef fyrning er ekki rofin með lögsókn. Hin undantekningin er sú, að sjóveð (og önnur eignarhöft) falla niður, ef skip er selt á nauð- ungaruppboði. Þessar undantekningar eru einnig í ísl. sigll., sbr. 201. gr. um fyrningu sjóveðréttar og 202. gr. um nauðungarsölu. Verður fljótlega vikið nánar að þeim. I sigll. 1985 er einnig sú séríslenska regla, að sjóveð í skipi fellur niður gagnvart grandlausum viðsemjendum eiganda skips, ef veðrétt- urinn hefur verið staðfestur með dómi eða dómsátt og útdrætti úr dóm- inum eða sáttinni ekki verið þinglýst innan sex vikna frá því að dómur var kveðinn upp eða dómsátt gerð, sjá 2. málsl. 1. mgr. 199. gr. sigll.38 Veðréttindi fyrnast almennt ekki og fyrning þeirrar kröfu, sem veð- rétturinn fylgir, hefur venjulega ekki áhrif á veðréttinn.39 Hins vegar fyrnist sjóveðréttur í skipi, ef honum er ekki fylgt eftir með lögsókn innan árs frá því að krafa stofnaðist, sbr. 201. gr. sigll. (Sama regla gildir um sjóveðrétt í farmi skv. 207. gr. sigll.). Eftir 232. gr. sigll. 1963 giltu aðrar reglur um upphaf fyrningarfrests, t. d. mið- aðist fyrningarfrestur skv. 6. tl. 232. gr. við gjalddaga kröfu.40 Breyt- ing þessi á upphafsmörkum fyrningarfrests er gerð í samræmi við breytingar, sem gerðar voru á siglingalögum annarra Norðurlanda að fyrirmynd Brússelsamningsins frá 1967. Þótt hér sé um að ræða mik- ilvæga breytingu, sem valdið getur nokkurri réttaróvissu, er hennar ekki getið í athugasemdum með lagafrumvarpi.41 Samkvæmt siglinga- 38 Um reglu þessa, sem er nýmæli, segir í athugasemdum með lagafrv., að hún sé tekin upp „f þeim tilgangi að auðvelda væntanlegum kaupendum skipa sem selja skal, en sem sjóveðréttur hvflir á, svo og samningsveðhöfum og öðrum, sem hagsmuna hafa að gæta, að átta sig á þessum mikilvægu eignarhöftum, sem skipi fylgja þrátt fyrir söluna. Að öðrum kosti eru þessi eignarhöft „ósýnileg", ef svo má að orði kveða, og reynslan hefur sýnt, að ekki er ætíð fullnægjandi að treysta upplýsingum [frá] seljanda einum um þetta atriði." (Alþt. 1984 A, bls. 1055.) Frekari rökstuðningur fyrir þessu nýmæli er ekki í frumvarpinu. Akvæði lagafrumvarps var breytt nokkuð í meðferð Alþingis. Regla þessi um skyldu til þinglýsingar er skv. ofangreindu einskorðuð við sjóveðrétt, sem staðfestur hefur verið með dómi eða dómsátt. Veðréttur helst því fyrir áföllnum sjóveðkröfum, sem dómur hefur ekki gengið um eða dómsátt. Er gildissvið reglunnar þess vegna fremur takmarkað og óvíst, að ávinningur sé að henni. Eins og fram kemur í 2. kafla hér að framan, er talið, að 3. maður verði almennt ekki bund- inn við réttarsátt um lögveð. Skýtur nokkuð skökku við, að umrædd regla 199. gr. skuli beinlínis ráðgera hið gagnstæða. 39 Gaukur Jörundsson, bls. 72. 40 Sjá t. d. H 1966, 789, H 1966, 792 og H 1966, 985. Aðrir dómar um fyrningu sjóveðréttar í skipi eftir eldri sigll. eru raktir í „íslenskum dómaskrám I“, bls. 212 og „Dómum i sjórréttarmálum 1965-1982“, bls. 43-44 (nr. 73-75). 41 Sjá Alþt. 1984, bls. 1055. í Innstilling VIII, bls. 78 eru hins vegar athyglisverðar athuga- semdir um upphafsmörk fyrningarfrests eftir hliðstæðu norsku lagaákvæði. 78

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.