Tímarit lögfræðinga - 01.06.1988, Blaðsíða 64
Ávíð
oíi dreif
Reykjavík, 16. maí 1988
NORRÆNT LÖGFRÆÐINGAÞING Á ÍSLANDI
ÁRIÐ 1990
Norrænt lögfræðingaþing verður haldið hér á landi dagana 22.-24. ágúst
1990. Slík þing hafa verið haldin tvívegis áður á íslandi, þ. e. 1960 og 1975.
Umræðuefni verða allmörg á hinu fyrirhugaða þingi. Má vænta þess, að
tvö viðfangsefni verði til umræðu á allsherjarfundum, líklega verða valin þrjú
efni til meðferðar í umræðuhópum og að auki allt að 15, sem rædd verða á
deildarfundur (sektions-fundum). Umræðuefnin verða endanlega valin á fundi
fulltrúa stjórna allra landsdeildanna norrænu í nóvember n. k. á grundvelli
tillagna frá hverri deild um sig.
Stjórn íslandsdeildar norrænu lögfræðingaþinganna metur mikils að fá
ábendingar og tillögur um umræðuefni á þinginu frá íslenskum lögfræðingum.
Viðfangsefnin mega ekki vera einskorðuð við eitt norrænt land heldur þurfa
þau að hafa almennt gildi fyrir norræna lögfræðiumræðu.
Þess er óskað, að tillögum um umræðuefni verði komið á framfæri við frú
Guðrúnu Erlendsdóttur hæstaréttardómara, dr. Gunnar Schram prófessor eða
undirritaðan fyrir miðjan október n. k.
Hið fyrirhugaða þinghald krefst mikils átaks. Leyfir stjórn íslandsdeildar-
innar sér að vænta stuðnings íslenskra lögfræðinga, svo að þingið megi verða
íslenskri lögfræðingastétt og landi til sóma.
Með bestu kveðjum,
vegna (slandsdeildar norrænu lögfræðingaþinganna
Ármann Snævarr
4. NORRÆNA NÁMSRÁÐSTEFNAN
UM RÉTTARFAR
Dagana 12. og 13. maí s. I. var 4. norræna námsstefnan um réttarfar haldin
í Bergen á vegum Norræna réttarfarsfélagsins. Umræðuefni voru tvö; varð-
aði hið fyrra gerðardóma, en hið síðara opinbert réttarfar. Nánar tiltekið var
fyrra efnið: Tillaga Uncitral að gerðardómslögum, en Uncitral er skammstöf-
un fyrir United Nations Commission on International Trade Law. Nefndin gekk
126